Krílasálmar eru tónlistarstundir fyrir ung börn og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva börnin. Í tímunum er notast við sálma, íslensk þjóðlög og þekkt barnalög, yfirtónarík hljóðfæri og forvitnilegan hljóðheim.
Krílasálmar eru samstarfsverkefni Hallgrímskirkju og Laugarneskirkju. Námskeiðsgjald er 5000 kr.