Fimmtudaginn 2. ágúst kl. 12 leikur organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík, Kári Þormar, verk eftir Bach, Vierne (Carillon de Westminster), Tryggva M. Baldvinsson (Toccata Jubiloso), Böhm og Duruflé.
2.ágúst kl. 12.00: Kári Þormar, organisti Dómkirkjunnar í Reykjavík
Efnisskrá:
Johann Sebastian Bach 1685‒1750
Tokkata í d-moll (dórísk), BWV 538/1
Louis Vierne 1870‒1937
Carillon de Westminster op. 54 nr. 6
úr „Pieces de fantasie“
Tryggvi M. Baldvinsson f. 1965 Toccata Jubiloso, 2003
Maurice Duruflé 1902‒1986
Choral varié sur le ‘Veni Creator’ op.4/3, 1930
Eftir píanónám hjá Jónasi Ingimundarsyni og orgelnám hjá Herði Áskelssyni hélt Kári Þormar í framhaldsnám til Þýskalands þar sem hann lauk A kirkjutónlistarnámi frá Robert Schumann háskólanum í Düsseldorf með 1. einkunn.
Kári hefur haldið fjölda orgeltónkeika, bæði hér heima og erlendis, þar á meðal á alþjóðlegri orgelhátíð á Álandseyjum og á alþjóðlegri tónlistarhátíð í Mühlhausen í Þýskalandi. Hann hlaut styrk úr minningarsjóði Karls Sighvatssonar árið 1997. Kári hefur verið atkvæðamikill í íslensku tónlistarlífi sem organisti, píanókennari og kórstjóri en á þeim vettvangi var hann tilnefndur til íslensku tónlistarverðlaunanna með Kór Áskirkju fyrir geisladiskinn Það er óskaland íslenskt. Kári tók við stöðu dómorganista við Dómkirkjuna í Reykjavík árið 2010. Þá er Kári stjórnandi kórs MR og starfar einnig við Menntaskóla í tónlist.