11Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. 12Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og liggjandi í jötu.“
13Og í sömu svipan var með englinum fjöldi himneskra hersveita sem lofuðu Guð og sögðu: 14Dýrð sé Guði í upphæðum og friður á jörðu og velþóknun Guðs yfir mönnum.
Lúk 2.11-14
24. desember – Aðfangadagur
Aftansöngur kl 18: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju, stjórnandi Hörður Áskelsson. Barna- og unglingakór Hallgrímskirkju, stjórnandi Helga Vilborg Sigurjónsdóttir.
Margrét Helga Kristjánsdóttir leikur á flautu. María Elísabet Halldórsdóttir og Robert Dennis Solomon slagverk.
Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Lesarar eru Svanborg Oddrúnardóttir og Margrét Helga Kristjánsdóttir.
Miðnæturguðþjónusta á jólanótt kl. 23.30: Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Lesarar eru Magnús Benediktsson og Elena Teufer
Schola cantorum syngur. Forsöngvarar eru Guðmundur Vignir Karlsson og Hildigunnur Einarsdóttir.
Daði Kolbeinsson leikur á óbó. Sif Margrét Tulinius leikur á fiðlu. Stjórnandi kórs og organisti er Hörður Áskelsson.
25. desember – Jóladagur
Hátíðarmessa kl. 14: Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.
Einsöngvari er Ásta Marý Stefánsdóttir.
26. desember – Annar í jólum
Vonarlestrar og söngvar á jólum kl. 14: Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjónar fyrir altari.
Mótettukór Hallgrímskirkju syngur. Stjórnandi og organisti er Hörður Áskelsson. Lesarar úr hópi kórfélaga og messuþjóna.
Verið hjartanlega velkomin í Hallgrímskirkju og…
GLEÐILEG JÓL