Boðið verður upp á áhugaverðan samslátt gamals og nýs á tónleikum í samvinnu Listvinafélags Hallgrímskirkju og Listaháskóla Íslands í Hallgrímskirkju á Vetrarhátíð, laugardaginn 9. febrúar kl. 14.
Á tónleikunum hljómar glæný tónlist eftir tónsmíðanemendur Listaháskólans í flutningi hljóðfæranemenda skólans í bland við aríur eftir Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Händel, Joseph Haydn og Wolfgang Amadeus Mozart en þær flytja söngnemendur skólans. Organisti á tónleikunum er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Þessir tónleikar hafa notið mikilla vinsælda og verið afar vel sóttir og eru orðnir meðal stærstu viðburða Tónlistardeildar LHÍ á hverri önn.
Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Efnisskrá:
– Johann Sebastian Bach: „Agnus Dei“ úr Messu í h-moll BWV 232.
Bergþóra Ægisdóttir, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
– Ingibjörg Elsa Turchi: „Alea“ fyrir breyttan flygil.
Flytjandi: Hjalti Þór Davíðsson, píanó
– Johann Sebastian Bach: „Schafe können sicher weiden“
úr Kantötu, BWV 208.
Eliska Helikarová, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
– Eðvarð Egilsson: „Piece of Pie“ fyrir breyttan flygil.
Flytjandi: Hjalti Þór Davíðsson, píanó
– Johann Sebastian Bach: „Quia respexit“
úr Magnificat, BWV 243.
Alexandria Scout Parks, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
Kristófer Kvaran: Erindi um entrópíu fyrir bassaklarínett
Stefán Ólafsson, klarinett
Johann Sebastian Bach: „Großer Herr und starker König“
úr Jólaoratíunni, BWV 248
Eirik Waldeland, söngur, Þórður Hallgrímsson, trompett, Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
Kristófer Kvaran: „Þrjár mínútur í eitt” fyrir píanó
Hjalti Þór Davíðsson, píanó
– Íris Rós Ragnhildardóttir: „Um eilífð“ fyrir sópran, selló og píanó.
Flytjendur: Snæfríður Björnsdóttir, sópran, Soffía Jónsdóttir selló og Mattias Martinez Carranza, píanó.
– Georg Friedrich Händel: „How Beautiful are the Feet of Them”
úr Messíasi, HWV 56.
Harpa Ósk Björnsdóttir, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
– Josep Haydn: „Sumarið“
Aría úr Árstíðunum Hob. XXI:3
Vera Hjördís Matsdóttir, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
– Andrés Þór Þorvarðarson og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir: „Er það nesti ef maður þarf að smyrja það”
Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir, fiðla
– Magni Freyr Þórisson. „The Shadow“ fyrir söngkvartett.
Flytjendur: Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngur, Sigríður Salvarsdóttir, söngur, Una María Bergmann, söngur og Bergþóra Ægisdóttir, söngur
– Wolfgang Amadeus Mozart: „Et incarnatus est”
Úr Messu í c-moll, K. 427.
Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel
– Wolfgang Amadeus Mozart: „Domine Deus“
Úr Messu í c-moll, K. 427
Sandra Lind Þorsteinsdóttir, söngur, Una María Bergmann, söngur og Lára Bryndís Eggertsdóttir, orgel

Elísabet Indra Ragnarsdóttir
Verkefnastjóri
tónlistardeildar / Project manager / Music department