Þitt orð er, Guð, vort erfðafé,
þann arf vér bestan fengum.
Oss liðnum veit til lofs það sé,
að ljós við þess vér gengum.
Það hreystir hug í neyð,
það huggar sál í deyð.
Lát börn vor eftir oss
það erfa blessað hnoss.
Ó, gef það glatist engum.
Grundtvig – Sb. 1871 – Helgi Hálfdánarson
Sálmur 300 í Sálmabók þjóðkirkjunnar