Guð: Elskhugi eða hrotti?

Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Fyrsti sunnudagur í föstu. Prestur Sigurður Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða. Félagar í Kór Hallgrímskirkju syngja. Organisti Matthías Harðarson. Barnastarfið er í umsjá Petrínar Ingu Kristjánsdóttur og Ragnheiðar Bjarnadóttur. 

Forspil - Prelúdía í e-moll eftir J.S. Bach

159 Fræ í frosti sefur

460 Ó hvað þú Guð ert góður

608 Þú heimsins ljós, Guðs ljómi skær

---

Kórsöngur: Á hendur fel þú honum. H.L Hassler/ Björn Halldórsson - J.S.Bach raddsetti

Bænasvar: 287 Þinn vilji Guð

496a Gegnum Jesú helgast hjarta

Undir útdeilingu: 317 Þetta er líkami Krists

277 Heilagi Guð, á himni og jörð

Eftirspil - Spuni yfir sálminn Heilagi Guð á himni og jörð

Textaröð: B
Lexía: 1M 4.3-7
Einhverju sinni færði Kain Drottni fórn af ávexti jarðarinnar. Abel færði einnig fórn af frumburðum hjarðar sinnar og feiti þeirra. Drottinn gaf gaum að Abel og fórn hans en leit ekki við Kain og fórn hans. Þá reiddist Kain mjög og varð þungur á brún. Drottinn sagði við Kain: „Hví reiðist þú og ert þungur á brún? Er ekki svo að þú getur verið upplitsdjarfur ef þú gerir rétt, en gerir þú rangt þá liggur syndin við dyrnar? Hún girnist þig en þú getur sigrast á henni.“

Pistill: Jak 1.12-16
Sæll er sá maður sem stenst freistingu og reynist hæfur. Guð mun veita honum kórónu lífsins sem hann hefur heitið þeim er elska hann. Enginn má segja er hann verður fyrir freistingu: „Guð freistar mín.“ Hið illa getur eigi freistað Guðs og sjálfur freistar hann einskis manns. Það er eigin girnd sem freistar sérhvers manns og dregur hann og tælir. Þegar girndin síðan er orðin þunguð elur hún synd og þegar syndin er orðin fullþroskuð leiðir hún til dauða.
Villist ekki, elskuð systkin.

Guðspjall: Lúk 22.24-34

Og þeir fóru að metast um hver þeirra væri talinn mestur. En Jesús sagði við þá: „Konungar þjóða drottna yfir þeim og valdhafar þeirra kallast velgjörðamenn. En eigi sé yður svo farið heldur sé hinn mesti yðar á meðal sem væri hann yngstur og foringinn sem þjónn. Því hvort er sá meiri sem situr til borðs eða hinn sem þjónar? Er það ekki sá sem situr til borðs? Samt er ég meðal yðar eins og þjónninn.
En það eruð þér sem hafið staðið með mér í freistingum mínum. Og yður fæ ég ríki í hendur, eins og faðir minn hefur fengið mér, að þér megið eta og drekka við borð mitt í ríki mínu, sitja í hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.
Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. En ég hef beðið fyrir þér að trú þín þrjóti ekki. Og styrk þú trúsystkin þín þegar þú ert snúinn við.“ En Símon sagði við hann: „Drottinn, ég er reiðubúinn að fylgja þér bæði í fangelsi og dauða.“Jesús mælti: „Ég segi þér, Pétur: Áður en hani galar í dag munt þú þrisvar hafa neitað því að þú þekkir mig.“

mynd/sáþ