Hausttónleikar Kórs Hallgrímskirkju

Kór Hallgrímskirkju heldur hausttónleika sína 30. október næstkomandi. Þar verða flutt bresk tónverk fyrir kór og orgel ásamt nýjum íslenskum kórverkum sem samin eru sérstaklega fyrir Kór Hallgrímskirkju. Þau eru eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Hildigunni Rúnarsdóttur, Þorvald Örn Davíðsson og Sigurð Sævarsson. Einnig verða flutt verk eftir Britten, Howells, Carter og Macmillan. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason og Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Einsöngvarar eru úr röðum kórfélaga. Verkin sem frumflutt verða voru samin með styrkjum frá Tónlistarsjóði kirkjunnar og STEFs og Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.

Kór Hallgrímskirkju var stofnaður haustið 2021 og telur nú um 45 manns. Kórinn hefur frá stofnun tekið þátt í helgihaldi í Hallgrímskirkju ásamt því að sinna tónleikahaldi og upptökum. Hann hefur lagt mikið uppúr flutningi á íslenskri kórtónlist og það er mikilvægur hluti kórstarfsins að stuðla að nýsköpun með frumflutningi nýrra tónverka. Haustið 2022 mun kórinn frumflytja fimm ný verk eftir íslensk tónskáld sem samin eru sérstaklega fyrir hann. Kór Hallgrímskirkju hefur einnig átt í gjöfulu samstarfi við Barokkbandið Brák en næstu tónleikar Kórs Hallgrímskirkju og Brákar verða 27. nóvember og verða tileinkaðir tónlist Johanns Sebastians Bach.

Steinar Logi Helgason lærði á píanó í Tónmenntaskóla Reykjavíkur, Nýja Tónlistarskólanum og í Tónlistarskólanum í Reykjavík. Hann hóf nám í Tónskóla Þjóðkirkjunnar árið 2010 og kláraði þar kirkjuorganistapróf og lauk síðar bakkalársgráðu úr Kirkjutónlistarbraut Listaháskóla íslands undir handleiðslu Björns Steinars Sólbergssonar. Steinar Logi stundaði meistaranám í ensemble conducting við Konunglegu tónlistarakademíuna í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan jólin 2020. Steinar hefur stjórnað fjölda kóra og starfað sem organisti, píanisti og stjórnandi á mörgum vígstöðum. Hann var tilnefndur ásamt Cantoque ensemble sem tónlistarhópur ársins í flokki Sígildrar-og samtímatónlistar. Steinar Logi tók við stöðu kórstjóra Hallgrímskirkju haustið 2021.

Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann er einnig skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem hann kennir jafnframt orgelleik. Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.
Hann starfaði einnig sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna.

Hægt er að nálgast miða við innganginn og á https://tix.is/is/event/14014/
Miðaverð 3500 kr.