Iceland Airwaves - Orgeltónleikar / Daft Punk!

Platan Discovery með franska rafdúóinu Daft Punk er án vafa ein áhrifamesta poppplata síðustu áratuga. Hún kom út árið 2001 og fagnar því 20 ára afmæli á árinu. Hljómsveitin er þekkt fyrir einstaklega vel smíðaðar arpeggíur og hljóðsömpl og má kalla Discovery eitt helsta flaggskip sveitarinnar á löngum og farsælum ferli. Sveitin hætti í lok árs 2020 og því er við hæfi að staldra við og heiðra sveitina, plötuna og stefnuna. Franskt rafpopp er einstakt á heimsvísu en sé litið nær má greina sterk áhrif úr orgeltónlist Frakka, en orgelið er jú afi hljóðsynthans (hljóðgervilsins). Hér gefst einstakt tækifæri til að hlusta á plötuna Discovery endurútsetta fyrir orgel, þar sem Kristján Hrannar Pálsson leikur plötuna í gegn, lag fyrir lag, á stærsta orgel landsins. Daft Punk aðdáendur mega ekki missa af þessu einstaka tækifæri.

 
Kristján Hrannar Pálsson er fæddur árið 1987. Hann nam klassískan píanóleik frá 6 ára aldri og jazzpíanóleik FÍH frá 14 ára aldri. Árið 2018 útskrifaðist hann sem organisti og kórstjóri frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Síðan þá hefur hann starfað sem organisti og tónlistarstjóri Óháða safnaðarins og sem organisti hjá Laugarneskirkju veturinn 2020-2021.
Árið 2013 gaf hann únno 2013 sem hlaut glæsilega dóma. Árið 2016 kom út fyrsta verk hans um loftslagsbreytingar, Arctic Take One, sem fjallar um borgir og bæi við norðurskautið. Árið 2020 frumflutti hann eigið orgelverk, Tvær gráður (+2,0°C) í Hallgrímskirkju, sem hluta af Vetrarhátíð í Reykjavík. 2021 lék hann eigin útsetningu á Daft Punk plötunni Discovery í heild sinni á orgel fyrir fullri Laugarneskirkju.
Kristján stofnaði Óháða kórinn árið 2018 sem hefur sungið með hljómsveitum á borð við HATARA. Hann býr í Reykjavík.
 
Hægt er að nálgast miða við innganginn og á https://tix.is/is/event/13995/
Miðaverð 3000 kr.