Málþing / Frá Níkeu til Hóla: Níkeujátningin 1700 ára

Frá Níkeu til Hóla: Níkeujátningin 1700 ára
Málþing
Safnaðarsalur Hallgrímskirkju
Föstudagur 14. nóvember 2025
Frá kl. 13:00-17:00

Í tilefni af því að 1700 ár eru liðin frá því að fyrsta samkirkjulega trúarjátningin var samin í Níkeu í Litlu Asíu stendur Guðfræðistofnun HÍ, í samvinnu við Reykjavíkurprófastsdæmi vestra, fyrir málþingi þar sem haldin verða eftirfarandi erindi:

• Ólafur Haukur Árnason, doktorsnemi við Oxford-háskóla: „Ágústínus og Aríusarsinnar: Stjórnmál, kennisetningar og bókmenning á 4. og 5. öld.“
• Dr. Haraldur Hreinsson, lektor við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild og á Menntavísindasviði HÍ: „Gagnrýni frjálslyndu guðfræðinnar á játningar fornkirkjunnar.“
• Sr. Kristján Valur Ingólfsson, fyrrverandi vígslubiskup í Skálholti: „Níkeujátningin-Messujátning Grallarans.“
• Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í trúfræði við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild HÍ: „Kirkjan játar. Íslenska þjóðkirkjan og játningarrit hennar.“

Málþingið fer fram föstudaginn 14. nóvember í safnaðarsal Hallgrímskirkju kl. 13:00–17:00 og er öllum opið.