Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Lenka Mátéóva, organisti í Kópavogskirkju og sópransöngkonan Alexandra Chernyshova flytja verk fyrir orgel og sópran á Orgelsumri í Hallgrímskirkju.
Tónleikarnir verða hugljúf stund þar sem falleg og róleg tónlist sendir bæn um frið út í alheiminn.

Hægt er að nálgast miða við innganginn og á https://tix.is/is/event/13601/

Miðaverð 2000 kr

Lenka Mátéová er fædd í Tékkóslóvakíu. Hún lauk kantorsprófi frá Konservatóríunni í Kromeriz og mastersnámi við Tónlistarakademíuna í Prag. Á námsárunum vann hún til margra verðlauna í heimalandi sínu og hún hefur leikið einleik víða í Evrópu.

Lenka hefur starfað á Íslandi frá árinu 1990, fyrst á Stöðvarfirði, svo árin 1993-2007 sem kantor við Fella- og Hólakirkju og nú við Kópavogskirkju. Hún hefur einnig tekið þátt í kammer- og kórtónleikum hér á landi og komið fram sem einleikari.

Auk starfa sinna við kirkjur hefur Lenka kennt orgelleik við Tónlistarskóla þjóðkirkjunnar og verið organisti með Karlakór Reykjavíkur, Drengjakór Reykjavíkur, Mótettukór og Hljómeyki. Hún hefur spilað með þeim á tónleikum, í upptökum fyrir sjónvarp, útvarp og á hljómdiska.

Alexandra Chernyshova - sópransöngkona og tónskáld. Hún var valin í hóp 10 framúrskarandi ungra Íslendinga árið 2014 fyrir framlag sitt til menningar á Íslandi. Árið 2020 fekk Alexandra menningarverðlaun Reykjanesbæjar. Hún lauk M.Mus gráðu frá Listaháskóla Íslands, M.Ed. frá Háskólanum í Kiev, meistaragráðu í óperusöng og söngkennaraprófi frá Odessa tónlistarakademíunni og Kiev Glier High Music College og sömuleiðis BA frá National Kiev Linguistic University. Alexandra lauk 8 stigi í píanóleik frá Kiev Tónlistarskóla N1. Auk þess stundaði hún söngnám hjá Michael Trimble Opera Institute og Katja Ricciarelli Opera Academy, ljóða- og kammertónlist hjá Pr. Hanno Blascke sömuleiðis. Hún hóf feril sinn á sviði sem einsöngvari hjá Kiev Academical Musical Theater of Opera and Ballet. Alexandra söng með Kiev National Radio Orquestra, New York Contemporary Opera, auk þess sem hún hefur sungið sem einsöngvari með Óperu Skagafjarðar sem hún stofnaði árið 2006. Alexandra hefur sungið víða á Íslandi, í Evrópu, New York, Kína og Japan.

Hún hefur gefið út þrjá einsöngsdiska Alexandra soprano (2006), Draumur með rómantískum lögum eftir Sergei Rachmaninov við meðleik Jónasar Ingimundarssonar (2008) og You and only you (2011). Árið 2020 hlaut fyrsta frumsamda ópera Alexöndru og Guðrúnar Ásmundsdóttur Skáldið og Biskupsdóttirin 1. sæti í alþjóðalegri tónskáldakeppni Isaak Dunajevskiy í Moskvu og lagið Ave María úr sömu óperu komst á topp tíu bestu í World Folk Vision alþjóðalegri tónlistarkeppni. Á þessu ári fékk óperuballet fyrir börn og fullorðna eftir Alexöndru Chernyshovu, Ævintýrið um norðurljósin, við handrit mömmu hennar, Evgeniu, Grand Prix í Art festival “Aurora” í Stokkhólmi. Árið 2021 frumsýndi Alexandra frumsömdu óperu Góðan daginn, frú forseti um fyrsta kvenforseta í heiminum frú Vigdísi Finnbogadóttur og fjallar um ævi og störf hennar.