Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Vegna veikinda verður breyting á tónleikunum á Orgelsumri í Hallgrímskirkju í dag.

Björn Steinar Sólbergsson organisti í Hallgrímskirkju flytur verk eftir Bach, Pál Ísólfsson, Sigurð Sævarsson og Boëllmann.

Miðar fást við innganginn.
Verð 3000 kr.

Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju í Reykjavík. Hann er einnig skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem hann kennir jafnframt orgelleik.
Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986.
Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna.
Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum norðurlöndunum, í Evrópu og norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra.
Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.
Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Listamannalaun 1999 og 2015.

 


Við óskum Tuuli Rähni góðs bata en hún mun koma fram á Orgelmaraþoni á Menningarnótt 20. ágúst og á Orgelsumri í Hallgrímskirkju á næsta ári.