Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Matthías Harðarson, Vestmannaeyjar

ORGELSUMAR Í HALLGRÍMSKIRKJU 2023
Matthías Harðarson, orgel - Vestmannaeyjar
Laugardagur 29. júlí kl. 12 
Miðar fást við innganginn og á https://tix.is/is/event/15693/
Aðgangseyrir 2.500 kr.

Matthías Harðarson hóf píanónám 10 ára gamall við Tónlistarskólann í Vestmannaeyjum. Meðal kennara hans þar voru þau Gíslína Sól Jónatansdóttir, Guðmundur H. Guðjónsson og Kittý Kovács. Hann lærði einnig á saxófón undir handleiðslu Stefáns Sigurjónssonar. Að loknu miðprófi á píanó hóf Matthías nám á orgel hjá þáverandi organista Landakirkju, Guðmundi H. Guðjónssyni og síðar hjá Kittý Kovács. Árið 2016 lauk Matthías kirkjuorganistaprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og lauk kantorsprófi sem og BA námi við Listaháskóla Íslands 2020. Þar lærði hann orgelleik hjá Birni Steinari Sólbergssyni, kórstjórn hjá Magnúsi Ragnarssyni og litúrgískanorgelleik hjá Guðný Einarsdóttur, Eyþóri Inga Jónssyni og Láru Bryndísi Eggertsdóttur. Samhliða orgelnáminu lagði Matthías stund á Vélstjórn og útskrifaðist sem Vélfræðingur árið 2017. Matthías hefur lokið mastersnámi í kirkjutónlist við konunglega tónlistarháskólann í Árósum. Undir leiðsögn Kristian Krogsøe, Lars Rosenlund Nørremark og Ulrik Spang-Hanssen.