Orgelsumar í Hallgrímskirkju

Johann Vexo organisti Dómkirkjunnar í Nancy, Frakklandi leikur verk eftir Bach, Franck, Saint-Saëns og Durufle.
Miðar fást við innganginn og á https://tix.is/is/event/13598/

Miðaverð 3000 kr.

Johann Vexo fæddist árið 1978 í borginni Nancy í norðausturhluta Frakklands. Þegar hann var 25 ára var hann skipaður kórorganisti í Notre-Dame dómkirkjunni í París. Skömmu síðar var hann einnig skipaður organisti Cavaillé-Coll orgelsins í dómkirkjunni í Nancy. Eftir að hafa kennt við Angers Conservatory í 10 ár er hann nú orgelkennari bæði við Tónlistarháskólann og Superior Tónlistarskólann í Strassborg.

Johann Vexo lærði fyrst á orgel hjá Christophe Mantoux, einnig lærði hann tónlist og semballeik við Tónlistarháskólann í Strassborg, þar sem hann hlaut Premier Prix verðlaun í orgelleik. Hann hélt áfram námi við Tónlistarháskólann í París og orgel-kennarar hans voru Michel Bouvard og Olivier Latry og spuna-kennarar hans voru Thierry Escaich og Philippe Lefebvre. Hann hlaut Premier Prix verðlaun bæði fyrir orgelleik og basso continuo og aukaverðlaun í hljómfræði og kontrapunkti.

Johann Vexo hefur komið fram víða um Evrópu, í Bandaríkjunum, Kanada, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Rússlandio. Hann hefur komið fram á fjölmörgum alþjóðlegum tónlistar- og orgelhátíðum m.a. í borgunum Atlanta, Auckland, Chicago, Genf, Los Angeles, Melbourne, Montreal, München, New York, Porto, Sankti Pétursborg, San Francisco og Vín. Hann hefur einnig spilað á þekktum tónleikastöðum eins og Wanamaker Grand Court í Fíladelfíu, Westminster Abbey í London, Basilica of the National Shrine í Washington DC, KKL í Lucerne, St. Mary's Cathedral í Sydney, Tónlistarháskólanum í Moskvu og Metropolitan dómkirkjunni í Mexíkóborg.

Johann Vexo hefur einnig leikið með ýmsum hljómsveitum og tónlistarhópum og kennt á meistaranámskeiðum í orgelleik fyrir American Guild of Organists og við virtar stofnanir (Rice University í Houston, Curtis Institute of Music í Philadelphia, University of Michigan, Folkwang Universität í Essen, Aveiro háskólann í Portúgal.). Hann hefur hljóðritað nokkra geisladiska á söguleg frönsk orgel, sérstaklega má nefna hjá JAV Recordings útgáfufyrirtækinu á hið mikla orgel Notre-Dame dómkirkjunnar í París.
Johann Vexo er fulltrúi Phillip Truckenbrod Concert Artists, LLC (www.concertartists.com).