Orgelsumar í Hallgrímskirkju - Tom Winpenny, orgel - St. Albans, UK

Orgelsumar í Hallgrímskirkju
Sunnudagur 6. ágúst kl. 17
Tom Winpenny, orgel - St. Albans, UK
Miðar fást við innganginn og á https://tix.is/is/event/15700/ 
Aðgangseyrir 3.500 kr

Tom Winpenny er aðstoðartónlistarstjóri við St Albans dómkirkjuna í Bretlandi, þar sem skyldur hans eru meðal annars að leika við daglegt helgihald og stjórna stúlknakór dómkirkjunnar. Hann lærði á orgel við King's College, Cambridge, þar sem hann lék tvisvar við Festival of Nine Lessons and Carols sem er útvarpað á alþjóðavettvangi. Í kjölfarið varð hann aðstoðarorganisti við St. Paul's dómkirkjuna í London, þar sem hann lék við marga stóra viðburði. Hann hefur komið reglulega fram í BBC Radio og einnig komið fram á Pipedreams American Public Media. Undanfarin ár hefur hann komið fram á tónleikum um alla Evrópu, Bandaríkin og Bretland þar á meðal Mariendom í Hamborg, Kalmar
dómkirkjunni (Svíþjóð), Grace dómkirkjunni (San Francisco) og Westminster dómkirkjunni (London). Hann kemur meðal annars fram á tónleikum árið 2023 í
dómkirkju heilags Stefáns í Vín og Summartónar-hátíðinni í Færeyjum.
Margar orgelupptökur hans innihalda tónlist breskra tónskálda, þar á meðal Judith Bingham, Malcolm Williamson, John Joubert, Elisabeth Lutyens og stórkostlega orgelsinfóníu Francis Potts Christus. Fyrir Naxos hefur hann hljóðritað fimm af stóru orgelverkum Olivier Messiaen, þar á meðal Méditations sur le Mystère de la Sainte Trinité á orgel Hallgrímskirkju. Nýjasta útgáfa hans, tónlist eftir Edward Elgar, var valin sem Critic's Choice í Gramophone tímaritinu. Upptökur hans hjá útgáfufyrirtækinu Naxos sem kórstjóri innihalda meðal annars trúarlega tónlist eftir Felix Mendelssohn og Michael Haydn.