Kirkjustuð er starf fyrir krakka í 5.-7. bekk. Starfið verður alla mánudaga í febrúar og mars kl. 15:00-16:00 í kórkjallara kirkjunnar. Þar verður ýmislegt brallað, t.d. leikir, bakað og föndrað.
Í lok stundar verður bæn og biblíusaga.
Upplýsingar um starfið: kristny@hallgrimskirkja.is.
Starfið er ókeypis og allir velkomnir.
Umsjón með starfinu hefur: Kristný Rós Gústafsdóttir verkefnastjóri- og djákni.