Fréttir: Júní 2016

Foreldramorgnar í kórkjallara

21.06.2016
Hinir fjörugu foreldramorgnar í kórkjallaranum halda áfram í allt sumar á miðvikudögum kl. 10 – 12. Foreldrar með krílin sín eru hjartanlega velkomin. Inga Harðardóttir og Helga Vilborg Sigurjónsdóttir taka vel á móti ykkur. Samvera sem inniheldur söng, leik og skemmtun í góðum hópi.

Árdegismessa

20.06.2016
Árdegismessur kl. 8 á miðvikudögum er frábær leið til þess að byrja daginn. Næsta miðvikudag, 22. júní mun dr. Sigurður Árni Þórðarson og messuþjónar þjóna í sameiningu. Morgunmatur og kaffi eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.

Fyrirbænamessa í kórkjallara

20.06.2016
Á morgun, þriðjudaginn 21. júní mun dr. Sigurður Árni Þórðarson leiða fyrirbænamessuna í kórkjallaranum kl. 10.30 – 11.00. Í messunni er beðið saman í góðu samfélagi. Allir velkomir.

Kerti tendruð í messu dagsins

19.06.2016
Í messu dagsins í Hallgrímskirkju voru tendruð kerti í minningu þeirra sem létu lífið í árásinni í Orlando og í minningu flóttafólks sem látið hefur lífið á leið sinni til betra lífs í Evrópu. Þetta var gert í tengslum við alþjóðlega flóttamannadaginn, sem er á mánudaginn, og tilmæli hafa komið frá alþjóða kirknasamfélaginu um að minnast þeirra...

Messa og sögustund 19. júní kl. 11

17.06.2016
Þessi sunnudagur er fjórði sunnudagur eftir þrenningarhátíð en að auki er þetta kvennréttindadagurinn. Í messunni verður einnig kveikt á kertum til að minningar um fórnalamba árásanna í Orlando og flóttamanna sem hafa farist á hafi. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Félagar úr Mótettukór...

Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Ísaksskóla syngja á 17. júní kl. 11

16.06.2016
Við hátíðarathöfn á 17. júní kl. 11 mun Barna -og unglingakór Hallgrímskirkju og Barnakór Ísaksskóla syngja saman Hver á sér fegra föðurland á Austurvelli eftir ávarp forsætisráðherra, Sigurðar Inga Jóhannssonar. Stjórnandi kóranna er Ása Valgerður Sigurðardóttir. Við hvetjum alla til þess að fjölmenna og hlusta á hátíðarathöfnina og fallegan...

Alþjóðlegt orgelsumar hefst laugardaginn 18. júní

16.06.2016
Ungstirni, glænýtt orgelverk og háleynilegt prógramm Ungstirni, frumflutningur á nýju, íslensku orgelverki og háleynilegt prógramm eru á dagskrá Alþjóðlega orgelsumarsins í Hallgrímskirkju 2016. Þetta er 24. árið sem orgelsumarið er haldið og verður í ár boðið upp á heila 29 orgeltónleika og níu kórtónleika. Hið stórkostlega Klais-orgel og...

Hinn síungi organisti Haukur Guðlaugsson vekur athygli

16.06.2016
Hinn síungi öldungur, Haukur Guðlaugsson, hefur enn og aftur slegið í gegn. Hann er 85 ára og kemur reglulega í Hallgrímskirkju til að æfa sig og stundum hefur hann leikið á kyrrðarstundum sl. vetur. Haukur Guðlaugsson er fyrrum söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og fyrrverandi skólastjóri Tónskóla Þjóðkirkjunnar. Ferðamaðurinn Mike Matthews...

Fyrirbænamessa í kórkjallara

13.06.2016
Fyrirbænamessa í kórkjallaranum er kl. 10.30 – 11.00 á þriðjudögum og verða þær á sínum stað í allt sumar. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir leiðir. Hægt er að senda inn fyrirbænir með því að hringja á kirkjuna s: 510 1000 milli kl. 9-17. Kaffisopi eftir stundina. Verið velkomin.