Fréttir: Júní 2021

Sigríður Jóna 1956 og Steinar Máni 2021

11.06.2021
Steinar Máni Þrándarson sagði já á fermingardeginum sem var hvítasunnudagurinn, 23. maí. Í kirkjunni voru auk allra hinna fermingarungmennana fjölskyldur og söfnuður. Og meðal þeirra var langamma Steinars. Hún heitir Sigríður Jóna Clausen og fermdist í Hallgrímskirkju líka. Það var 65 árum fyrr, þ.e. árið 1956. Til hamingju Steinar Máni, Sigríður...

Bjössi og samherjar lífsins

06.06.2021
Þegar ég ólst upp á Grímstaðaholtinu var á vorin mikið fjör við Þormóðsstaðafjöruna við Ægisíðu. Þar voru bátar grásleppukarlanna. Björn Guðjónsson var kóngurinn á svæðinu. Íbúar í Vesturbænum könnuðust við Bjössa og allir krakkar á Grímsstaðaholtinu þekktu hann. Við, smáfólkið, sóttum í fjölbreytilegt lífið við ströndina, skoðuðum kuðunga og...

Já, sjómennskan ...

04.06.2021
Á sjómannadegi verður rætt um sjómennsku og þjónustu í guðsþjónustunni 6. júní kl. 11. Sr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða.  Forsöngvarar:  Heiðdís Hanna Sigurðardóttir, Fjölnir Ólafsson, Marteinn Snævarr Sigurðsson, Rósalind Gísladóttir, Salný Vala Óskarsdóttir. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson....

Skráning í fermingarfræðsluna stendur yfir!

03.06.2021
Skráning í fermingarfræðslu í Hallgrímskirkju stendur yfir. Fermingarfræðslan er fyrir ungmenni sem fara í 8. bekk í haust. Fræðslan fer fram í kórkjallara kirkjunnar og verður á miðvikudögum. Fræðslan hefst í september. Skráningin fer fram á heimasíðunni eða HÉR Hér má sjá fermingarfræðslu...

Barna- og æskulýðsstarf komið í sumarfrí

02.06.2021
Barna- og æskulýðsstarf Hallgrímskirkju er komið í sumarfrí. Við þökkum fyrir þennan skrítna vetur og hlökkum til að sjá ykkur spræk aftur í haust. Guðsþjónustur í Hallgrímskirkju verða þó á sínum stað á sunnudögum kl. 11:00. Kæru börn, unglingar og foreldrar hafið það gott í sumar.

Þakkir við starfslok Harðar Áskelssonar

01.06.2021
Í maílok urðu tímamót í Hallgrímskirkju. Hörður Áskelsson, kantor, lét af störfum sem organisti kirkjunnar. Hörður hefur gegnt þeirri stöðu frá því hann lauk námi í Þýskalandi árið 1982. Hann beitti sér, ásamt prestum, sóknarnefnd og velunnurum kirkjunnar, fyrir uppbyggingu safnaðarstarfs Hallgrímskirkju. Hörður stofnaði Mótettukór...

Árdegisguðsþjónustur hefjast að nýju

01.06.2021
Miðvikudaginn 2. júní  kl. 10.30  hefjast að nýju eftir sóttvarnahlé árdegisguðsþjónustur í Hallgrímskirkju. Athugið breytta tímasetningu ! Sungið, beðið og hlýtt á stutta hugleiðingu í góðu samfélagi. Prestar og messuþjónar þjóna. Morgunmatur og kaffi eftir messu.  Verið hjartanlega velkomin.