Söngvahátíð barnanna á sumardaginn fyrsta í Hallgrímskirkju

23. apríl

Á Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 25. apríl, verður  Söngvahátíð barnanna haldin í Hallgrímskirkju. 

Þar munu koma fram um 200 börn með barna- og unglingakórum ásamt stjórnendum úr kirkjum víða að á landinu. Með kórunum leika þeir Davíð Sigurgeirsson á gítar og Ingvar Alfreðsson á píanó. Sérstakur gestur hátíðarinnar verður Íris Rós.

Tónleikar hátíðarinnar verða haldnir kl. 14.00.

Verið öll hjartanlega velkomin!

HALLGRÍMSKIRKJA - STAÐUR BARNANNA!