Fjölskylduguðsþjónusta 19. desember kl. 11

Síðasta sunnudag fyrir jól verður fjölskylduguðsþjónusta í Hallgrímskirkju. Prestur og barnastarf: Ragnheiður Bjarnadóttir og Sigurður Árni Þórðarson. Organisti: Björn Steinar Sólbergsson. Barnakórinn Graduale Futuri syngur. Kórstjóri: Björg Þórsdóttir. Kveikt verður á fjórða kertinu á aðventukransinum. Hver veit nema jólasveinar láti sjá sig?