Hjónavígsla

Hjónavígslutími og prestar

Til að panta hjónavígslu í Hallgrímskirkju vinsamlegast hafið samband við s. 510 1000. Ef óskað er eftir þjónustu presta kirkjunnar hafið beint samband við annan hvorn prest kirkjunnar:

Irma Sjöfn Óskarsdóttir irma@hallgrimskirkja.is - s. 771 8200
Eiríkur Jóhannsson - eirikur@hallgrimskirkja.is - s. 864 0802 

 


Um hjónavígslu

Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem tveir einstaklingar heita ævitryggðum, að eiga, njóta og þiggja saman önn sem yndi lífsins, gleði og sorgir.

Hjónavígslan er tjáning gleði og fagnaðar, samstöðu, ábyrgðar og vonar á þessum vegamótum lífsins sem hjónin á. Söfnuðurinn umlykur hjónin fyrirbæn sinni ásamt kirkjunni allri og vill með Jesú Krist sem fyrirmynd sýna því samfélag hinnar gagnkvæmu þjónustu og þörf allra fyrir samfélag við Guð og náungann utan hrings fjölskyldunnar.

Návist Guðs í hjónabandinu veitir hjónunum hjálp til að lifa saman í kærleika og umhyggju og vera vottar þess í umhverfi sínu.

Hjónin játast hvort öðru opinberlega fyrir Guði og söfnuðinum, heita því að vera hvort öðru trú, elska og virða hvort annað. Guð sameinar þau og þau tvö verða eitt. Presturinn minnir á skuldbindingar og ábyrgð og fyrirheit hjónabandsins, og lýsir þau hjón og leggur blessun Guðs yfir hjúskap þeirra. Viðstaddir biðja fyrir þeim og heimili þeirra.

Hjúskaparsáttmálinn sjálfur er veraldleg stofnun. Karl og kona, karl og karl eða kona og kona sem heimild hafa til hjúskapar lýsa því yfir í áheyrn votta að þau vilji vera hjón og síðan handsala þau þennan sáttmála. Efnislega er enginn munur á þessu hvort sem um er að ræða borgaralega hjónavígslu eða kirkjulega. Samkvæmt íslenskum lögum hafa prestar og forstöðumenn safnaða heimild til að annast þennan borgaralega gjörning. Önnur algeng heiti á hjónavígslu eru brúðkaup og gifting.

Það sem greinir kirkjulega hjónavígslu frá borgaralegri er fyrst og fremst ákveðin afstaða brúðhjónanna til kristinnar trúar. Þetta er kristin hjúskaparstofnun. Þessvegna verður amk annað brúðhjónanna að tilheyra Þjóðkirkjunni.

Meginregla er að kirkjubrúðkaup fari fram í kirkju. Í það minnsta skulu vera viðstaddir tveir vottar, eða svaramenn, en oftast eru það fleiri, úr söfnuðinum eða fjölskydum brúðhjónanna. Heimild er fyrir því að giftingarathöfn geti farið fram á heimili eða utanhúss. (kirkjan.is)

Hægt er að óska eftir brúðkaupi í Hallgrímskirkju með því að hringja í kirkjuna eða senda fyrirspurn á hallgrimskirkja@hallgrimskirkja.is.
Greiða þarf fyrir leigu á kirkjunni og laun kirkjuvarðar, kr. 50.000. Ef óskað er eftir prestþjónustu má senda fyrirspurn á irma@hallgrimskirkja.is eða jon.asgeir.sigurvinsson@kirkjan.is.
Gjald fyrir hjónavígslu er 25.000 krónur. 

Til að hjónaband sé lögformlega gilt er áskilið að rætt sé fyrst við könnunarmann hjá embætti sýslumanns áður en farið er að skipuleggja hjónavígslu með presti.