Skírn

Til þess að panta skírn, vinsamlegast hafið samband við annan hvorn prest Hallgrímskirkju:

Irma Sjöfn Óskarsdóttir – irma@hallgrimskirkja.is – s. 771 8200
Eiríkur Jóhannsson - eirikur@hallgrimskirkja.is - s. 864 0802 


Í skírn er skírnarþegi tekinn inn í kirkju Krists. Í Þjóðkirkjunni er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga. Samkvæmt fyrirmælum Jesú Krists er barn skírt til nafns föður og sonar og heilags anda. Það er helgað Guði með orði hans og bæn og ausið vatni og blessað.

Meginreglan er sú að barn sé skírt í kirkju og að viðstöddum söfnuði eða fulltrúum hans, en gömul hefð er fyrir því á Íslandi að skírn geti farið fram á heimili barnsins. Venjan er að barnið sem skírt er sé fært í hvítan skírnarkjól sem er tákn fyrirgefningar syndanna. Kjóllinn er síður, sem táknar það að skírnarbarnið á að vaxa í trú, von og kærleika.

Ástvinir velja barninu skírnarvotta. Skírnarvottar, oft einnig nefnd guðfeðgin, eru aldrei þau aldrei færri en tvö, karl og kona (eins og felst í orðinu), en mest geta verið fimm. Æskilegt er að í það minnsta eitt guðfeðginana sé á þeim aldri að það geti fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Foreldrar og guðfeðgin játa trúna fyrir hönd barns síns og skuldbinda sig þar með til að ala barnið upp í kristinni trú.

Við skírnarathöfn eru lesnir þeir ritningartextar sem skírnin byggir á. Vel fer á að ástvinir skírnarþegans lesi textana.

Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar. Mt. 28. 18-20

„Menn færðu börn til hans, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.” – Mk. 10. 13-16

Hægt er að óska eftir skírn í guðsþjónustu, í einkaathöfn í kirkjunni eða með því að fá prest í heimhús eða sal. Þegar skírt er í guðsþjónustu er það gert í upphafi og sú þjónusta er foreldrum að kostnaðarlausu. Einkaathöfn í kirkju er ástvinum einnig að kostnaðarlausu en í heimahúsi er greitt fyrir skírnina skv gjaldskrá hins opinbera. Organistar kirkjunnar spila oft við sérathafnir og ef þeir eru beðnir um það er jafnan greitt fyrir þá þjónustu. Sama gildir ef kalla þarf sérstaklega út kirkjuverði.

Algengast er að nafn barns sé nefnt fyrsta sinni við skírnina. Nauðsynlegt er að láta prest vita með góðum fyrirvara um nafn og nöfn skírnarvotta, sem eru tveir hið minnsta. Ef nafn er ekki til á mannanafnaskrá er nauðsynlegt að sækja um leyfi fyrir því til Mannanafnanefndar, sem reynir að afgreiða málin snarlega. Prestur sér um að koma skráningu nafns til þjóðskrár.