Jólin hans Hallgríms

Sýningin „Jólin hans Hallgríms“  hefur verið í Hallgrímskirkju síðustu sex ár og núna í sjöunda sinn býður Hallgrímskirkja leikskóla- og grunnskólabörnum í Reykjavík og nágrenni, að koma í heimsókn í Hallgrímskirkju í aðdraganda jólanna. Sýningin byggir á samnefndri bók Steinunnar Jóhannesdóttur og myndum Önnu Cynthiu Leplar.

Í heimsókninni er skoðunarferð um kirkjuna og sagt frá kirkjumunum. Börnin fá stutta endursögn úr bókinni Jólin hans Hallgríms og hún segir frá undirbúningi jólanna hjá Hallgrími Péturssyni þegar hann var ungur drengur og hvernig jólin voru fyrir 400 árum á Íslandi. Verkefnið hefur mælst vel fyrir og fengið góð viðbrögð.

Baðstofa var gerð fyrir sýninguna. Þar er hægt að vitja jóla fortíðar. Í baðstofunni eru myndir og textar úr bókinni ásamt munum sem vísa til sögunnar.

Börnum á aldrinum 3 til 10 ára er boðið að koma í skóla- eða hópheimsókn. Hópar geta bókað heimsókn með því að senda tölvupóst til Kristnýjar Rósar Gústafsdóttur, djákna og verkefnastjóra Hallgrímskirkju. Netfang hennar er kristny@hallgrimskirkja.is. Aðgangur er ókeypis.

Tekið verður á móti hópum á virkum dögum frá 30. nóvember til 20. des. Hver heimsókn tekur u.þ.b. 40 mín. Á mán. og fös. er hægt að bóka heimsókn frá kl. 10-14. Það er ekki hægt að koma á fimmtudögum. Á þri. og fim. er hægt að bóka heimsókn frá kl. 12:30-14:30.

Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við undirbúning jólanna hjá heimilisfólkinu í Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur átti heima. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.

Hér má sjá kynningarmyndband.

Hallgrímskirkja býður ykkur velkomin.