Alla sunnudaga er sunnudagaskóli kl. 11.00 í Hallgrímskirkju. Sunnudagaskólinn hefst í sameiginlegri guðsþjónustu í kirkjunni en síðan fara börnin með leiðtogum sínum í Suðursalinn og eiga skemmtilega stund saman. Ýmislegt skemmtilegt er brallað í sunnudagaskólanum, t.d. brúðuleikhús, leikir, fjársjóðsleit, bænir, biblíusaga og söngur. Það er alltaf föndrað eitthvað sem tengist sögu og boðskap dagsins.
Við lok fjölskyldustundarinnar er boðið upp á léttar veitingar í messukaffinu. Allar fjölskyldur á öllum aldri eru hjartanlega velkomin í barnastarf í Hallgrímskirkju!