Sigrún Magna Þórsteinsdóttir, organisti og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir, sellisti, koma fram á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju 7. maí.
Á efnisskránni eru verk eftir kventónskáld fyrir selló og orgel, frá barokktímanum til nýrra verka m.a. eftir Steinunni Arnbjörgu Stefánsdóttur og Arngerði Maríu Árnadóttur.
Hægt verður að kaupa miða við inngang og á tix.is
Miðaverð er 2000 krónur, ókeypis fyrir börn, 16 ára og yngri.