Passíusálmar
Hallgríms Péturssonar
í Hallgrímskirkju föstudaginn langa 7. apríl 2023
kl. 13.00-18.20
Flytjendur Passíusálmanna á föstudaginn langa verða fimm: Jakob Þór Einarsson, Halla Guðmundsdóttir, Halla Margrét Jóhannesdóttir, Svanhildur Óskarsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttur, sem hefur umsjón með flutningum. Verkinu er skipt í sex hluta og á milli þeirra er leikið á orgel kirkjunnar. Tónlistin er í höndum organista Hallgrímskirkju og kórstjóra, þeirra Björns Steinars Sólbergssonar og Steinars Loga Helgasonar.
Passíusálmarnir eru eitt notadrýgsta og mikilvægasta verk íslenskrar bókmenntasögu. Þeir urðu helsta íhugunar- og huggunarrit þjóðarinnar nánast frá því þeir tóku að birtast í uppskriftum og á prenti á seinni hluta 17. aldar og fram undir okkar daga. Passíusálmarnir urðu tæki Íslendinga til að eiga samtal við sál sína.
Samsetning flytjendahópsins að þessu sinni er hugsuð sem vísun til þess hvernig Passíusálmarnir héldu innreið sína í þjóðlíf Íslendinga. Karllesarinn er hugsaður sem fulltrúi skáldsins, en konurnar fulltrúar fyrir þær fjórar konur sem Hallgrímur sendi fyrstu eiginhandarritin af Passíusálmunum. Þær hétu Ragnhildur Árnadóttir frá Ytra-Hólmi, Helga Árnadóttir í Hítardal, Kristín Jónsdóttir í Einarsnesi og Ragnheiður Brynjólfsdóttir í Skálholti. Hallgrímur gerði þessar konur að fyrstu kynningarfulltrúum sínum fyrir skáldverkið.
Passíusálmarnir eru dramatískt, trúarlegt skáldverk, samið af sjaldgæfri leikni og valdi á viðfangsefninu, bæði að innihaldi og fjölbreytni í bragarháttum. Þeir voru ortir til flutnings við tiltækar aðstæður og hafa sem slíkir lengi freistað tónlistarfólks sem og flytjenda talaðs máls. Á þriðja ári eftir vígslu Hallgrímskirkju voru Passíusálmarnir í fyrsta sinn fluttir þar í heild sinni á föstudaginn langa. Frumkvæði að þeim flutningi hafði Eyvindur Erlendsson leikari og leikstjóri og lagði þar með grunninn að þeirri hefð sem hefur staðið nær óslitið síðan. Hefðin hefur svo breiðst út til annarra kirkna víða um landið.
Mikill fjöldi lesara hefur tekist á við verkefnið sem eftirsóknarvert þykir að glíma við. Það verður enginn samur maður á eftir, sem tekur þátt í heildarflutningi Passíusálmanna.
Umsjónarmaður með flutningum, Steinunn Jóhannesdóttir, er rithöfundur, leikkona og leikstjóri. Hún hefur oft áður stjórnað flutningi Passíusálmanna, bæði í Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti, Hallgrímskirkju í Saurbæ og víðar. Steinunn flutti Passíusálmana í Ríkisútvarpinu árið 2021.