Sigurbjörn Einarsson og Guð

Hvernig talaði Sigurbjörn Einarsson um Guð? Sigurbjörn biskup var einn öflugasti prédikari sem Íslendingar hafa notið um aldir. Hann sagði margt um Guð. Í ræðum hans eru kunnugleg stef forvera hans í stétt íslenskra presta en svo eru mörg áberandi atriði sem Sigurbjörn tjáði með öðrum hætti en aðrir forverar og samtíðamenn hans. Hvað var það? Um það verður rætt í fræðslusamveru í Suðursal Hallgrímskirkju þriðjudaginn 21. febrúar kl. 12.10.

Hvaða áhrif hafa þarfir hvers tíma á trúartúkun og hvernig talað er um Guð? Hvaða guðsmynd hafa íslenskir prestar síðustu 350 ár túlkað og tjáð? Er það sama guðsmyndin allar aldirnar? Á þriðjudagsfundum í hádeginu í febrúar ræðir Sigurður Árni Þórðarson um guðsmyndir Íslendinga í sögu og samtíð. Hver var Guð Hallgríms í Passíusálmunum? Hver var guðsmynd Vídalínspostillu, Guð í túlkun Sigurbjörns Einarssonar og guðsmyndir í nútíma samfélagi Íslendinga? Um það ræðir Sigurður Árni Þórðarson. Hann er doktor í guðfræði og sóknarprestur Hallgrímskirkju. Þetta eru síðustu fyrirlestrar hans sem þjónandi prests kirkjunnar.

Fræðslusamverur Hallgrímskirkju í hádeginu á þriðjudögum verða kl. 12.10-13:00. Léttar veitingar í boði.