Skaparinn, lífsháskinn og bænavoð

Messa kl. 11.00 á Þrenningarhátíð og Sjómannadegi. Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Félagar úr Kór Hallgrímskirkju syngja.  Drengjakór Sofia (Sofia Boys Choir) undir stjórn Prof. Dr. Adriana Blagoeva og Drengjakór Reykjavíkur (Reykjavík Boys Choir) undir stjórn Þorsteins Freys Sigurðssonar syngja í messunni. 
Píanóleik með kórunum annast Zornitsa Getova og Laufey Sigrún Harðardóttir
Í lok messunnar tekur Hallgrímssöfnuður formlega við kærkominni listaverkagjöf,  Bænavoð Erlu Þórarinsdóttur, sem hefur verið fundinn staður á vegg við hlið hornsteins Hallgrímskirkju.
Erla saumaði út bænina sem Jesús Kristur kenndi okkur með silkiþræði í ullarvoð sem Rauði krossinn notar við hjálparstörf. Verkið var hafið í byrjun efnahagshruns 2008 og lokið í heimsfaraldrinum 2020. Gefandi listaverksins er Ólafur Ragnar Grímsson en verkið er minningargjöf um eiginkonu hans, Guðrúnu Katrínu Þorbergsdóttur, móður listamannsins 

Guðspjall: Matteus 8.23-27
Nú fór Jesús í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gerði svo mikið veður á vatninu að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: „Drottinn, bjarga okkur, við förumst.“
Hann sagði við þá: „Hví eruð þið hræddir, þið trúlitlir?“ Síðan reis hann upp, hastaði á vindinn og vatnið og varð stillilogn.
Mennirnir undruðust og sögðu: „Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.“

Lexía: Sálmarnir 107.1-2, 20-31
Þakkið Drottni því að hann er góður,
því að miskunn hans varir að eilífu.
Svo skulu hinir endurleystu Drottins segja,
þeir er hann hefur leyst úr nauðum
sendi orð sitt og læknaði þá
og bjargaði þeim frá gröfinni.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,
færa honum þakkarfórnir
og segja frá verkum hans með fögnuði.
Þeir sem fóru um hafið á skipum
og ráku verslun á hinum miklu höfum
sáu verk Drottins
og dásemdarverk hans á djúpinu.
Því að hann bauð og þá kom stormviðri
sem hóf upp öldur hafsins.
Þeir hófust til himins, hnigu í djúpið,
og þeim féllst hugur í háskanum.
Þeir skjögruðu og reikuðu eins og drukkinn maður
og kunnátta þeirra kom að engu haldi.
Þá hrópuðu þeir til Drottins í neyð sinni
og hann bjargaði þeim úr þrengingum þeirra.
Hann breytti storminum í blíðan blæ
og öldur hafsins lægði.
Þeir glöddust þegar þær kyrrðust
og hann leiddi þá til þeirrar hafnar sem þeir þráðu.
Þeir skulu þakka Drottni miskunn hans
og dásemdarverk hans við mannanna börn,

Pistill: Postulasagan 27.13-15, 20-25
Nú rann á hægur sunnanvindur. Hugðust þeir þá hafa ráð þetta í hendi sér, léttu akkerum og sigldu fram með Krít nærri landi. En áður en langt leið skall á af landi ofan fárviðri, hinn illræmdi landnyrðingur. Skipið hrakti og varð því ekki beitt upp í vindinn. Slógum við undan og létum reka.Dögum saman sá hvorki til sólar né stjarna og ekkert lát varð á ofviðrinu. Tók þá að þrjóta öll von um að við kæmumst af.
Nú höfðu menn lengi einskis matar neytt. Þá stóð Páll upp meðal þeirra og mælti: „Góðir menn, þið hefðuð átt að hlíta mínu ráði og leggja ekki út frá Krít. Þá hefðuð þið komist hjá hrakningum þessum og tjóni. En nú hvet ég ykkur til að vera vonglaðir því enginn ykkar mun lífi týna en skipið mun farast. Því að á þessari nóttu stóð hjá mér engill þess Guðs sem ég heyri til og þjóna og mælti: Óttast þú eigi, Páll, fyrir keisarann átt þú að koma. Guð hefur gefið þér alla þá sem þér eru samskipa. Verið því vonglaðir, góðir menn. Ég treysti Guði, að svo muni fara sem við mig hefur verið mælt.