Skírn



Upphaf lífsins í kirkju Krists

Skírnin er upphafspunktur lífsins í kirkju Krists. Í Þjóðkirkjunni er algengast að barn sé skírt meðan það enn er ómálga.

Val á stað og formi athafnar

Meginreglan er sú að skírn fari fram í kirkju og að viðstöddum söfnuði eða fulltrúum hans. Þó er gömul hefð fyrir því á Íslandi að hægt sé að skíra utan kirkjunnar.

  • Skírn í guðsþjónustu

    Skírnin fer fram í upphafi almennrar guðsþjónustu. Sú þjónusta er foreldrum að kostnaðarlausu.

  • Einkaathöfn í kirkjunni

    Hægt er að óska eftir einkaathöfn fyrir ástvini í Hallgrímskirkju. Þessi þjónusta er foreldrum að kostnaðarlausu.

  • Skírn í heimahús eða sal

    Hægt er að fá prest í heimahús eða sal til að skíra. Greitt er fyrir þessa þjónustu samkvæmt gjaldskrá hins opinbera.

Ef kalla þarf sérstaklega út organista eða kirkjuvörð við einkaathöfn eða heimaskírn er greitt fyrir þá þjónustu.

Hafa samband og pantanir

Gerðu svo vel að hafa samband við presta kirkjunnar: 

Merking, siðir og undirbúningur

  • Merking og helgi athafnarinnar

    Samkvæmt fyrirmælum Jesú Krists er barn skírt til nafns föður og sonar og heilags anda. Það er helgað Guði með orði hans og bæn og ausið vatni og blessað.


    Venjan er að barnið sem skírt er sé fært í hvítan skírnarkjól sem er tákn fyrirgefningar syndanna. Kjóllinn er síður, sem táknar það að skírnarbarnið á að vaxa í trú, von og kærleika.

  • Skírnarvottar

    Ástvinir velja barninu skírnarvotta, oft einnig nefnd guðfeðgin. Vottar eru aldrei aldrei færri en 2 en mest geta verið 5.


    Æskilegt er að í það minnsta eitt guðfeðginana sé á þeim aldri að það geti fylgt barninu eftir til fullorðinsára. Foreldrar og guðfeðgin játa trúna fyrir hönd barns síns og skuldbinda sig þar með til að ala barnið upp í kristinni trú.


    Við skírnarathöfn eru lesnir þeir ritningartextar sem skírnin byggir á. Vel fer á að ástvinir skírnarþegans lesi textana.


    „Og Jesús gekk til þeirra, talaði við þá og sagði: Allt vald er mér gefið á himni og jörðu. Farið því og gjörið allar þjóðir að lærisveinum, skírið þá í nafni föður, sonar og heilags anda, og kennið þeim að halda allt það, sem ég hef boðið yður. Sjá, ég er með yður alla daga allt til enda veraldar.”


    Mt. 28. 18-20


    „Menn færðu börn til hans, að hann snerti þau, en lærisveinarnir átöldu þá. Þegar Jesús sá það, sárnaði honum, og hann mælti við þá: Leyfið börnunum að koma til mín, varnið þeim eigi, því að slíkra er Guðs ríki. Sannlega segi ég yður: Hver sem tekur ekki við Guðs ríki eins og barn, mun aldrei inn í það koma. Og hann tók þau sér í faðm, lagði hendur yfir þau og blessaði þau.”


    Mk. 10. 13-16


  • Undirbúningur og nafnagjöf

    Algengast er að nafn barns sé nefnt fyrsta sinni við skírnina. Nauðsynlegt er að láta prest vita með góðum fyrirvara um nafn og nöfn skírnarvotta, sem eru tveir hið minnsta. 


    Ef nafn er ekki til á mannanafnaskrá er nauðsynlegt að sækja um leyfi fyrir því til Mannanafnanefndar, sem reynir að afgreiða málin snarlega. Prestur sér um að koma skráningu nafns til þjóðskrár.