Bóka athöfn

Athafnir í Hallgrímskirkju

Allar athafnir í Hallgrímskirkju fara fram samkvæmt handbók íslensku þjóðkirkjunnar. Athafnir annarra kristilegra trúfélaga eru háðar leifi presta kirkjunnar. Athafnir annarra en kristilegra trúfélaga er ekki hægt að halda í kirkjunni.

Athafnir eru aðeins bókaðar innan opnunartíma kirkjunnar.

Ekki er hægt að bóka kirkjuna fyrir athafnir fyrr fyrir liggur hvaða prestur þjónar í athöfninni.

Staðfesta þarf allar bókanir og frátektir vegna giftinga, skírna, ferminga og viðburða með að minnsta kosti þriggja vikna fyrirvara. Annars verður bókunin afbókuð.

Þjónusta presta og organista kirkjunnar er ekki innifalin í leiguverði kirkjunnar fyrir athafnir.

Einungis er tekið við bókunum virka daga milli 10 og 17.

Aðgangur að hljóðfærum kirkjunnar er einungis veittur með leyfi organista.

Kirkjuverðir bóka og veita nánari upplýsingar vegna athafna í kirkjunni: kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is

Vinsamlegast hafið samband beint við presta og organista kirkjunnar vegna þjónustu þeirra við athafnir.

  • Gifting

    Nánari upplýsingar um giftingu og blessun  í Hallgrímskirkju veita kirkjuverðir: kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is

  • Skírn

    Nánari upplýsingar um skírn í Hallgrímskirkju  veita kirkjuverðir: kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is

  • Ferming

    Skírn er ókeypis í kirkjunni og er kirkjuskipinu lokað. Hámarks lokunartími kirkjuskipsins er 45 min.

  • Útför

    Útfarir er aðeins hægt að bóka af útfararstofum eða að beiðni presta. 

     

    Nánari upplýsingar um útför í Hallgrímskirkju  veita kirkjuverðir: kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is



  • Salur

    Hægt er að bóka safnaðarsal kirkjunnar fyrir smærri mannfögnuði (hámark 80 manns í sæti og hámark 100 manns standandi). 


    Ekki er hægt að bóka salinn fyrir erfidrykkjur.


    Nánari upplýsingar um leigu á sal í Hallgrímskirkju  veita kirkjuverðir: kirkjuverdir@hallgrimskirkja.is

Fyrir leigu á kirkjunni fyrir aðra viðburði vinsamlegast hafið samband við kirkjuhaldara