Konsertorgel


Með tilkomu Klais orgelsins 1992 varð vendipunktur í tónlistarlífi kirkjunnar þar sem hægt var að bjóða uppá orgeltónleika á heimsmælikvarða.

Konsertorgelið við vesturgaflinn í Hallgrímskirkju er stærsta orgel á Íslandi og sækjast organistar víða um heim eftir að leika á orgelið og hljóðrita í kirkjunni. Það var vígt í desember 1992, smíðað af Johannes Klais orgelsmiðjunni í Bonn í Þýskalandi. Orgelið hefur 4 hljómborð og fótspil, 72 raddir og 5275 pípur. Orgelið er 15 metra hátt, vegur um 25 tonn og stærstu pípurnar eru um 10 metra háar. Kaup á orgelinu voru fjármögnuð að miklu leyti með gjöfum. Fólki var boðið að kaupa pípurnar og enn er hægt að kaupa gjafabréf í verslun kirkjunnar sem vottar að viðkomandi sé eigandi tiltekinnar pípu.

Klaisorgelið er notað við helgihald kirkjunnar auk þess sem það hefur hlotið almenna viðurkenningu sem frábært tónleikahljóðfæri. Tilkoma færanlega orgelborðsins hefur aukið notkunarmöguleika orgelsins verulega, bæði hvað varðar tónleika- og helgihald. Um leið er þetta langstærsta orgelið á Íslandi og er rómað meðal organista víða um heim fyrir gæði, fjölbreytt raddval og hversu vel það fellur að rými kirkjunnar.



Kórorgel


Kórorgel byggt af Th. Frobenius og Sønner Orgelbyggeri A/S í Lyngby í Danmörku og vígt í desember 1985.

Kórorgelið var endurbyggt og stækkað í 20 raddir og vígt á hvítasunnudag 19. maí 2024.

Með endurgerð og stækkun kórorgelsins vilja söfnuðurinn og gefendur heiðra minningu Hallgríms Péturssonar á 350 ára dánarártíð hans 2024.

Einstaklingar og fyrirtæki sem vilja styrkja uppbyggingu og viðhald orgela kirkjunnar geta millifært og er reikningsnúmerið eftirfarandi: 0133-26-009422 Kt: 590169-1969 Mikilvægt er að skrifa „Orgelsjóður“ í útskýringu.