Jólin hans Hallgríms
Hallgrímskirkja býður leikskóla- og grunnskólabörnum í Reykjavík og nágrenni, að koma í heimsókn í Hallgrímskirkju í aðdraganda jólanna á sýninguna „Jólin hans Hallgríms“ sem byggir á samnefndri bók Steinunnar Jóhannesdóttur.
Í heimsókninni er skoðunarferð um kirkjuna og sagt frá kirkjumunum. Börnin fá stutta endursögn úr bókinni Jólin hans Hallgríms sem segir frá undirbúningi jólanna hjá Hallgrími Péturssyni þegar hann var ungur drengur og hvernig jólin voru fyrir 400 árum á Íslandi. Verkefnið hefur mælst vel fyrir og fengið einstaklega góð viðbrögð.
Baðstofa verður sett upp fyrir sýninguna. Þar sem hægt verður að vitja jóla fortíðar. Í baðstofunni má finna muni sem fjallað er um í bókinni og leikararnir Níels Thibaud Girerd og Pálmi Freyr Hauksson töfra upp jólastemningu sem vísa til sögunnar.
Börnum á aldrinum 3 til 10 ára er boðið að koma í skóla- eða hópheimsókn. Hópar geta bókað heimsókn á sýninguna bakvið þessa smellu hér í gegn um abler.io
Fyrirspurnum er svarað í gegn um netfangið vidburdir@hallgrimskirkja.is
Aðgangur er ókeypis.
Tekið verður á móti leik- og grunnskólahópum á virkum dögum í desember. Hver heimsókn tekur um það bil 40 mínútur
Þótt margt hafi breyst á fjórum öldum er ýmislegt kunnuglegt við undirbúning jólanna hjá heimilisfólkinu í Gröf á Höfðaströnd þar sem Hallgrímur átti heima. Þá eins og nú kviknar ljós í hjörtum mannanna þótt myrkrið grúfi yfir.
