Útfarir og greftranir



Kveðja í kristinni trú

Þegar einhver úr söfnuðinum deyr fer fram útfararathöfn, venjulega í kirkju, og síðan er greftrun í kirkjugarði.

Kistulagning og bænastund

Undanfari útfarar er kistulagning, sem er bænastund með ástvinum þegar hinn látni hefur verið lagður í kistuna og áður en kistunni er lokað. Bænastund er einnig haldin með ástvinum við andlátið sjálft.

Útfarir

Hægt er að óska eftir þjónustu presta og organista Hallgrímskirkju við útförina.

Útfararstofur sjá um að bóka Hallgrímskirkju ef óskað er eftir því að útförin fari fram þar.

Ástvinir greiða fyrir prestþjónustu, en annar kostnaður er greiddur í gegnum útfararstofu.

Merking og siðir

Jesús sagði: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa þótt hann deyi. Jh.11.26.

  • Merking og helgi athafnarinnar

    Einkenni útfararathafnarinnar er hin kristna von um upprisu og eilíft líf.


    Í trú á Jesú Krist leggjum við þau sem við kveðjum í vígða mold.


    Grafreitir og kirkjugarðar eru helgaðir, nema þeir reitir sem ætlaðir eru fyrir þau sem eru utan kirkju eða tilheyra öðrum trúarsamfélögum.

  • Greftrunarform

    Oftast eru hinir látnu jarðsettir í venjulegri kistu, en ef líkbrennsla hefur farið fram að lokinni útfararathöfninni er duftkerið jarðsett.

  • Minningarathafnir

    Í flestum kirkjugörðum eru minnismerki eða reitir vegna þeirra sem drukkna eða týnast. Þá er haldin minningarathöfn í kirkjunni og blómsveigur lagður við minnismerkið.