Messuþjónar



Lifandi þáttaka

Margir gefa af tíma sínum í Hallgrímskirkju sem sjálfboðaliðar. Messuþjónar er einn slíkur hópur sem tekur virkan þátt í helgihaldi.

Hlutverk messuþjóna

Messuþjónar eru sjálfboðaliðar sem hjálpa til við að gera messuna góða og hátíðlega. Meginhlutverk þeirra er að:

  • taka á móti og bjóða fólki velkomnið
  • lesa Biblíutexta
  • útdeila í altarisgöngum

Að taka þátt í messuhópi er hópefli sem gefur mikið og á ekki að vera íþyngjandi. Sigrún Valgeirsdóttir, reyndur messuþjónn, segir:

„Mér finnst stórkostlegt að taka lifandi þátt í starfinu, vera með hópi af góðu fólki sem vill leggja sig fram um að gera messuna góða og hátíðlega. Það er hópefli í þessu starfi, gefur mikið í þetta. Það er mikilvægt að þeir sem vilja vera virkir í kirkjunni hafi tækifæri til þess. Meðal þess sem við messuþjónar gerum er að taka hlýlega á móti fólki. Þegar fólk kemur í kirkju á það að finna að það sé velkomið.“

Viltu vera messuþjónn?

Prestar gefa nánari upplýsingar um hlutvekrin og skrá nýja messuþjóna.

Irma Sjöfn Óskarsdóttir: 7718200 irma@hallgrimskirkja.is 
Eiríkur Jóhannsson: 864 0802 
eirikur@hallgrimskirkja.is