Fermingar

Fermingarfræðsla 2026 - 2027

Í haust hefst fermingarfræðsla í Hallgrímskirkju, ætluð börnum í 8. bekk sem eru að velta því fyrir sér, eða hafa ákveðið að fermast vorið 2027.

Veturinn fyrir fermingu er spennandi tími í lífi unglinganna og fjölskyldna þeirra. Á mikilvægum mótunartíma býður kirkjan til samtals um trú, lífsskoðanir og hamingju. Fermingarfræðslan er opin öllum ungmennum í áttunda bekk grunnskóla og sérstaklega krökkum sem búa í Miðbænum og Hlíðarendahverfi. 

Í fræðslunni er lögð áhersla á fjölbreytilega og skemmtilega kristnifræðslu með samtölum og upplifun. Lögð er áhersla á vináttu, virðingu og víðsýni í fræðslunni. Ungmenninn taka þátt í nokkrum messum. Farin er ævintýraferð í Vatnaskóg. Kennt verður um grundvallaratriði kristinnar trúar og íslenskan menningararf.


Kynningarfundur verður í Hallgrímskirkju í byrjun september 2026.

Fermingardagur í Hallgrímskirkju 2027

Fyrirhugaður fermingardagur vorið 2026 er sunnudaginn 4. apríl kl. 11:00.

Nánari upplýsingar veita prestar Hallgrímskirkju.

Verð fyrir fræðsluna er 26.188 krónur og er innifalið í gjaldinu kennslan yfir veturinn, vettvangsferðir og létt hressing í tímum. 


Skráning fer fram HÉR á heimasíðu Hallgrímskirkju og á abler.io

Fermingarungmenni velja sér minnisvers fyrir fermingarathöfn. Þau mega velja sér það biblíuvers sem er þeim hugstæðast.

Til að auðvelda þeim valið er hægt að nota lista minnisversa og að baki þessari smellu er einn slíkur listi.