Sóknarnefnd Hallgrímskirkju

Á aðalsafnaðarfundi 31. maí 2026 voru samþykktar nýjar verklagsreglur fyrir sóknarnefnd. Framvegis eru 5 aðalmenn í sóknarnefnd í stað 7 áður og framkvæmdanefnd lögð niður. Þóknun er greidd fyrir fundi í sóknarnefnd eins og gert er fyrir nefndastörf í Þjóðkirkjunni.


Á fundinum voru stjórnarmenn kjörnir til tveggja ára í samræmi við svigrúm til að ákveða lengd kjörtímabils í nýsamþykktum starfsreglum Kirkjuþings.


Einar Karl Haraldsson er formaður, Rúnar Vilhjálmsson varaformaður, Guðrún Hlíðdal Gunnarsdóttir ritari, Guðlaugur Gunnarsson gjaldkeri og Harpa Þórsdóttir, lista- og safnaðarfulltrúi.


Varamenn í sóknarnefnd voru kjörin Ágústa Th Ólafsdóttir, Július Viggó Ólafsson, Kristín Björg Knútsdóttir, Svava Bernharðsdóttir og Óskar Jónsson.


Á aðalsafnaðarfundi voru Bára Guðmannsdóttir og Jóhannes Pálmason heiðruð fyrir nærri fjögurra áratuga samfellt starf í sóknarnefnd. Jóhannes var formaður í 31 ár og hefur verið síðan til ráðuneytis sem varamaður og Bára hefur verið máttarstólpi í Kvenfélagi Hallgrímskirkju alla tíð. Á meðfylgjandi mynd eru Bára og Jóhannes ásamt formanni.

Aðalmenn

  • Einar Karl Haraldsson (formaður) – einarkarl@internet.is
  • Guðlaugur Gunnarsson (gjaldkeri)
  • Rúnar Vilhjálmsson (varaformaður)
  • Guðrún Hlíðdal Gunnarsdóttir (ritari)
  • Harpa Þórsdóttir (lista- og safnaðarfulltrúi)

Varamenn

  • Ágústa Th. Ólafsdóttir
  • Júlíus Viggó Ólafsson
  • Kristín Björg Knútsdóttir
  • Svafa Bernharðsdóttir
  • Óskar Jónsson