
Foreldramorgnar
Á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00–12:00 eru foreldramorgnar í kórkjallara Hallgrímskirkju (gengið inn bakdyramegin).
Samverurnar eru fyrir foreldra/umsjónar- og forráðamenn auk barna þeirra.
Fjölskyldur á öllum aldri eru hjartanlega velkomnar og henta þessar stundir sérstaklega þeim sem eru í fæðingarorlofi eða heimavinnandi.
Foreldramorgnar eru notaleg stund þar sem markmiðið er að efla félagsleg tengsl foreldra og barna í hlýju og opnu umhverfi.
- Söngstund er kl. 11:00.
- Stundum kíkir góður gestur í heimsókn.
- Ömmur, afar og au-pair velkomin.
- Boðið er upp á hressingu.
- Hlýtt andrúmsloft, góð samvera og gleði fyrir stór og smá.
Umsjón með foreldramorgnum hafa Ragnheiður Bjarnadóttir, píanókennari, og Olga Helgadóttir.
Foreldramorgnar eru einnig með Facebook-hóp: Parents’ Mornings at Hallgrímskirkja / Hallgrimskirkja Playgroup
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR BARNANNA















