Kirkjubygging í mótun
24.febrúar 2026 -24.mars 2026
Klukkan:
12:00

Kirkjubygging í mótun
Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í febrúar og mars 2026 kl. 12:00-13:00
Á þriðjudögum kl. 12.00–13.00 er boðið upp á fræðandi fyrirlestra í Hallgrímskirkju undir yfirskriftinni Kirkjubygging í mótun.
Að þessu sinni tengjast fyrirlestrarnir 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju. Fjallað verður um byggingarsögu kirkjunnar og sérstæði hennar. Einnig verður fjallað um guðfræðilegan merkingarheim kirkjubygginga almennt og um hljóðheim Hallgrímskirkju, tónlistina sem tengist kirkjunni og Hallgrímssöfnuði.
24. febrúar
Þáttur sr. Karls Sigurbjörnssonar, fyrrum biskups Íslands, í byggingu og vígslu Hallgrímskirkju.
Sr. Þorvaldur Karl Helgason, fyrrum biskupsritari, fjallar um þátt sr. Karls Sigurbjörnssonar, fyrrum biskups Íslands, í byggingu og vígslu kirkjunnar.
Sr. Karl starfaði sem sóknarprestur í Hallgrímssókn um áratuga skeið og markaði djúp spor í sögu safnaðarins.
Þorvaldur byggir umfjöllun sína á minningarbrotum sr. Karls í bók hans sem kom út í lok síðasta árs, Skrifað í sand.
3. mars
Kirkjubyggingar Guðjóns Samúelssonar
Pétur Ármannsson, arkitekt
Höfundur Hallgrímskirkju, húsameistarinn Guðjón Samúelsson, á sér sérstakan sess í íslenskri þjóðarsögu. Hann er sá arkitekt sem flestir kannast við og nafn hans kemur sjálfkrafa upp í hugann þegar minnst er á íslenska byggingarlist. Hönnun kirkjubygginga var veigamikill þáttur í ævistarfi Guðjóns; vitað er með vissu um 42 kirkjur sem hann teiknaði. Í erindinu verður rakin þróun kirkjubygginga hans, allt frá fyrstu tillögu að kirkju á Skólavörðuholti árið 1916 til hugmynda hans um form og byggingarstíl núverandi Hallgrímskirkju.
10. mars
Augljóst en hulið
Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, prestur
Fjallar um kirkjubygginguna: Augljóst en hulið
17. mars
Tónheimur Hallgrímskirkju
Tónlistin hefur verið órofa og mikilvægur þáttur í starfi Hallgrímskirkju frá upphafi. Fjallað verður um tónlistarhefð kirkjunnar og þann hljóðheim sem mótað hefur ímynd hennar.
24. mars
„Mínum Drottni til þakklætis“
Að lokum fjalla prestar kirkjunnar um sögu Hallgrímskirkju.
Umfjöllunin er byggð á bók Sigurðar Pálssonar sem kom út árið 2015, á 75 ára afmæli Hallgrímssafnaðar.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR