Kynning á nýju messuformi
15.mars 2026 -15.mars 2026
Klukkan:
10:00

Ný handbók íslensku kirkjunnar er í undirbúningi og á síðasta ári voru sendar tillögur að breytingum á messformi þjóðkirkjunnar til safnaða hennar.
Sunnudaginn 15. mars nk. ætlum við að breyta til og nota nokkrar af tillögum handbókarnefndar kirkjunnar í messunni kl. 11.00.
Sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir kynnir messuformið kl. 10 fyrir messuna sem hefst kl. 11.
Í beinu framhaldi af kynningunni kl. 10:30 verður einnig opin sálmaæfing við Frobenius kórorgel kirkjunnar með Steinari Loga Helgasyni kórstjóra og organista og félögum úr Kór Hallgrímskirkju.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR