Að losna úr fjötrum – Messa í Hallgrímskirkju, sunnudaginn 23. ágúst 2026 kl. 11

20. ágúst 2026

Að losna úr fjötrum

Messa í Hallgrímskirkju sunnudaginn 23. ágúst kl. 11

Sr. Eiríkur Jóhannsson prédikar og þjónar fyrir altari.

Messuþjónar aðstoða.

Félagar úr Kór Hallgrímskirkju leiða söng.

Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. 
Christian Barthen sunnudagsorganisti Orgelsumars í Hallgrímskirkju flytur eftirspil.


Kl. 17 sama dag eru LOKATÓNLEIKAR ORGELSUMARS Í HALLGRÍMSKIRKJU

Orgelsumar 2026 lýkur með glæsilegum tónleikum þar sem Christian Barthen, organisti og tónlistarstjóri við Dómkirkjuna í Bern, leikur á Klais-orgel Hallgrímskirkju.
Christian Barthen (f. 1984 í Saarbrücken) er alþjóðlega starfandi konsertorganisti og prófessor í orgelleik við Tónlistarháskólann í Bern (HKB). Hann hefur stundað nám í orgelleik, píanóleik og semballeik, auk kirkjutónlistar og tónlistarkennslu, í Saarbrücken, París og Stuttgart.
Barthen hefur hlotið verðlaun í virtum orgel- og tónlistarkeppnum, meðal annars Grand Prix de Chartres. Hann hefur komið fram sem einleikari víða um Evrópu, í Rússlandi, Suður-Ameríku og Austurlöndum fjær og tekið þátt í fjölmörgum útvarps-, sjónvarps- og hljóðritunarverkefnum.

Miðasala: í Hallgrímskirkju og á tix.is
Aðgangseyrir: 4.200 kr.

Hallgrímskirkja – þinn staður