Aðalsafnaðarfundur 2026
21. maí 2026

Aðalfundur Hallgrímssafnaðar 31. maí 2026 kl. 12:45
í Norðursal Hallgrímskirkju eftir sunnudagsmessu.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og tillögur um breytta skipan sóknarnefndar.
Tillögurnar miða að því að auka festu og marksækni í stjórnun vegna sívaxandi umsvifa og anna í kirkjustarfi, framkvæmdum og ferðaþjónustu.
Þær snúast meðal annars um
- að í sóknarnefnd verði 5 aðalfulltrúar með sérstök ábyrgðarhlutverk og 5 til vara.
(prestar, tónlistarstjóri og kirkjuhaldari sækja einnig fundi sóknarnefndar);
- að framkvæmdanefnd sóknarnefndar verði lögð niður;
- að aðalmenn verði kosnir beinni kosningu á aðalsafnaðarfundi;
- að kjörtímabil sóknarnefndar verði tvö ár;
- að fundarþóknun verði greidd eins og fyrir nefndastörf hjá Þjóðkirkjunni.
Tillögurnar ásamt skýringum eru birtar á heimasíðu Hallgrímskirkju, www.hallgrimskirkja.is .
Ef tillögur sóknarnefndar um breytta skipan verða samþykktar á fundinum, þá fer fram kjör sóknarnefndar í kjölfarið samkvæmt hinum nýju reglum.
YFIRLIT UM STARFSREGLUR, HLUTVERK SÓKNARNEFNDA OG TILLÖGUR TIL AÐALSAFNAÐARFUNDAR HALLGRÍMSSAFNAÐAR SEM HALDINN ER 31. MAÍ 2026
- Starfsreglur kirkjuþings sem meðal annars snerta sóknarefndir:
www.kirkjuthing@kirkjan.is ( Undir flipa í eyra: Lög og reglur – Starfsreglur)
- Starfsreglur um söfnuði og sóknarnefndir nr. 16/2021-2022, sbr. starfsrgl. nr. 16/2022-2023, nr. 9/2023-2024, nr. 41/2023-2024 og nr. 10/2025-2026.
- Starfsreglur um kirkjur og safnaðarheimili nr. 46. 2022 - 2023
- Starfsreglur um héraðsfundi og héraðsnefndir nr. 43 2021 – 2022, sbr. starfsrgl. nr. 29/2025-2026 og nr. 34/2025-2026.
- Starfsreglur um þingsköp kirkjuþings nr. 8/2025-2026.
- Starfsreglur um kirkjutónlist á vegum þjóðkirkjunnar nr. 1074 – 2017
- Ákvörðun kjaranefndar Þjóðkirkjunnar um laun forseta kirkjuþings og þingfulltrúa, stjórnar Þjóðkirkjunnar og nefnda, starfshópa og teyma á vegum þjóðkirkjunnar 1. apríl 2026
- Siðareglur vígðra þjóna og annars starfsfólks þjóðkirkjunnar svo og sókna, sem samþykktar voru á kirkjuþingi 2009, sbr. breytingar á kirkjuþingum 2013 og 2018.
- Hlutverk sóknarnefnda samkvæmt gildandi starfsreglum.
8. gr.
Guðsþjónusta, helgihald, trúfræðsla og rekstur.
Sóknarnefnd skal starfa með vígðum þjónum við mótun og skipulag kirkjulegs starfs. Sóknarnefnd annast rekstur og framkvæmdir á vegum sóknarinnar.
Sóknarnefnd er ásamt sóknarpresti í fyrirsvari fyrir sóknina gagnvart stjórnvöldum, einstaklingum og stofnunum.
Hún hefur umsjón með kirkju safnaðarins og safnaðarheimili.
Sóknarnefnd skal gæta réttinda kirkju og gera prófasti viðvart ef út af bregður.
9. gr.
Helstu störf sóknarnefndar eru sem hér segir:
1. Hafa ásamt prestum og í samráði við annað starfsfólk safnaðarins, eftir því sem við á, forgöngu um kirkjulegt starf á vegum sóknarinnar.
2. Fjárstjórn sóknarinnar.
3. Umsjón og gæsla eigna sóknarinnar.
4. Sjá til þess að viðunandi húsnæði og búnaður sé til guðsþjónustuhalds og annars safnaðarstarfs í sókninni.
5. Að sjá til þess að skráðir kirkjugripir og minningamörk séu verndaðir skv. ákvæðum laga um menningarminjar nr. 80/2012, með síðari breytingum.
6. Ráða starfsfólk sóknar í samráði við sóknarprest.
7. Önnur verkefni sem aðstæður í sókninni kunna að útheimta.
8. Sóknarnefnd (aðal- og varamenn) skulu kjósa fulltrúa á kirkjuþing í sínu prófastsdæmi skv. reglum þar um
- Úttekt á stjórnar- og rekstrarfyrirkomulagi Hallgrímssafnaðar
Í desember 2025 var að tilstilli sóknarnefndar gert samkomulag um úttekt á stjórnar- og rekstrarfyrirkomulagi Hallgrímssafnaðar við Erlend Hjaltason rekstrarhagfræðing.
Undanfarin ár hefur á vettvangi sóknarnefndar Hallgrímskirkju átt sér stað stefnumótun, umræða og nefndarstarf vegna sívaxandi umsvifa í rekstri kirkjunnar sem hefðbundir stjórnarhættir sóknarnefnda eru ekki taldir henta að öllu leyti. Kirkjan hefur þá sérstöðu að auk þróttmikils helgihalds og safnaðarstarfs og umfangsmikillar tónlistarstarsemi er ferðaþjónusta verulegur hluti af umsvifum hennar. Ferðaþjónustan er megintekjustofn Hallgrímskirkju og stendur undir afar fjárfrekum viðhaldsframkvæmdum og endurbótum.
Í verkefninu skilgreindi verktaki skipulag og ferli ákvarðana í Hallgrímssöfnuði, rekstur kirkjunnar, viðhald og aðrar framkvæmdir og lagði mat á skilvirkni fundahalda og upplýsingamiðlunar innan hennar. Einnig var í umfjöllun hans gerð grein fyrir ábyrgðarskiptingu miðað við starfsreglur sóknarnefndar, presta og organista og hvernig best sé að tryggja árangursríka stjórnarhætti sem taka mið af rekstrarumfangi, helgihaldi sem uppfyllir væntingar og þarfir safnaðarins og kirkjulegu umhverfi. Í þessu sambandi var metið hvort rök væru til þess að fækka í sóknarnefnd og leggja samhliða niður framkvæmdanefnd um leið og teknar yrðu upp sem viðmið ákvarðanir kjaranefndar Þjóðkirkjunnar varðandi þóknanir til nefnda, ráða og teyma innan þjóðkirkjunnar.
Erlendur Hjaltason gerði grein fyrir niðurstöðum sínum á fundum sóknarenfndar Hallgrímssafnaðar 10. febrúar og 17. mars. Á síðarnefnda fundinum var honum falið eftir umfjöllun og ábendingar að undirbúa tillögur, á þeim nótum sem hann fjallaði um, til aðalfundar Hallgrímssafnaðar, sem haldinn er 31. maí næstkomandi. Tillögurnar rúmast að dómi Erlendar og Kristins Hallgrímssonar hrl. innan ramma Starfsreglna um söfnuði og sóknarnefndir þjóðkirkjunnar, eins og þær voru samþykktar á Kirkjuþingi í mars 2026.
- TILLÖGUR
frá Erlendi Hjaltasyni rekstrarhagfræðingi til aðalfundar Hallgrímssafnaðar 31. maí 2026:
- Sóknarnefnd Hallgrímssafnaðar
Tillaga: Sóknarnefnd skipa fimm aðalmenn og fimm til vara.
Formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og safnaðarfulltrúi,
skulu kosnir hver um sig sérstaklega á aðalfundi til eins árs (tveggja ára) í senn.
Varamenn skulu kosnir samkvæmt röð, 1.2.3.4.5., til eins árs (tveggja ára) í senn
nema tillaga komi fram um að þeir séu kosnir sérstaklega hver um sig.
Einungis aðalmenn eru kvaddir til sóknarnefndarfunda, en
varamenn í forföllum þeirra samkvæmt áðurnefndri röð.
Til skýringar: Í rúmlega þrjá áratugi hefur sóknarnefnd verið skipuð sjö aðalmönnum og
jafnmörgum til vara. Aðal- og varamenn hafa verið boðaðir á fundi sem hafa verið ca. 10 á ári og þá sækja þegar full mæting er, sem verður að teljast sjaldgæft, einnig tveir prestar, organisti og kirkjuhaldari, samtals 18 manns auk gesta. Jafnframt hefur sóknarnefnd skipað þriggja manna framkvæmdnefnd úr sínum hópi sem hittist reglulega ásamt prestum, organista og kirkjuhaldara, samtals 6 manns auk gesta. Með tillögu nr. D. 1 er framkvæmdanefnd lögð niður og komið í veg fyrir tvíverknað og óskilvirkni sem ekki hefur mælst vel fyrir í sívaxandi önnum og álagi í kirkjustarfi og ferðaþjónustu.
Enda þótt nýbreyttar starfsreglur Kirkjuþings mæli einungis fyrir um kjör formanns, varaformanns og gjaldkera í umsvifameiri sóknum í beinni kosningu er hér lagt til að ritari og lista- og safnaðararfulltrúi verði einig kjörnir á aðalfundi. Rétt þykir að eitt gangi yfir alla aðalmenn í sóknarnefnd í þessu efni.
Í fjórða kafla Starfsreglna um söfnuði og sóknarnefndir segir m.a. í 5 grein: „Aðalsafnaðarfundur kýs sóknarnefndarmenn og varamenn til allt að fjögurra ára í senn. Aðalsafnaðarfundur getur þó ákveðið að kjósa megi til sóknarnefndar árlega.“
Hér hefur Kirkjuþing horfið frá skiptri kosningu sem miðaði að því að stuðla að samfellu í starfi sóknarnefnda, það er að segja kjöri þriggja til tveggja ára og fjögurra til fjögurra ára, miðað við sjö í sóknarnefnd, og er þetta mikil breyting. Með tilliti til sérstöðu og mikilla umsvifa Hallgrímssafnaðar þykir rétt að leggja til árlegt kjör sóknarnefndar (eða til tveggja ára). Ljóst er að starfsreglur eins og þær eru nú heimila lengra kjörtímabil, allt að fjögurra ára.
- Fundir og verklag sóknarnefndar
Tillaga: Sóknarnefnd haldi allt að 12 fundi á ári og fimm aðalmenn í henni hafi mætingarskyldu. Ritari heldur skrá um mætingar og lætur kalla inn varamenn ef aðalmaður forfallast.
Varamenn taka sæti í forföllum aðalmanna eftir þeirri röð sem þeir eru kosnir. Varamenn fá sendar fundargerðir sóknarnefndar og öll helstu skjöl er varða rekstur og framvindu mála í Hallgrímskirkju. Heimilt skal sóknarnefnd að kveðja varamenn sér til liðsinnis þegar hún telur ástæðu til.
Sóknarnefnd efnir til safnaðarfunda auk aðalfundar til þess að kynna og ræða mikilvæg mál þegar ástæða er til.
Til skýringar: Hér er í raun gerð tillaga um að fimm aðalmenn taki að sér bæði hlutverk framkvæmdnefndar og sóknarnefndar eins og þau hafa verið. Þar með fækkar fundum um nærri helming og von til þess að þeir verði markvissari, með fullri mætingu og meir í ætt við stjórnarfundi í meðalstórum fyrirtækjum heldur en verið hefur. (Sjá og tillögu nr. D. 4). Varðandi almenna safnaðarfundi til viðbótar aðalfundi hefur verið rætt um að hafa til dæmis safnaðarfund samhliða desemberfundi sóknarnefndar, þar sem úthlutað er úr Líknarsjóði Hallgrímskirkju samkvæmt venju.
- Verkaskipting og sérstök verkefni innan sóknarnefndar
Tillaga: Sóknarnefnd gerir samþykkt um störf sín þar sem meginhlutverk stjórnarmanna eru skilgreind svo og sérstök verkefni hvers stjórnarmanns innan nefndarinnar. Uppkast að slíkri samþykkt er lagt fram með tillögum þessum.
- Til skýringar: Hér er um að ræða starfslýsingu stjórnarmanna í fáum dráttum ásamt tillögu um sérstök verkefni til þess að dreifa ábyrgð og álagi, og tryggja að stjórnarmenn séu vel að sér á einstökum málasviðum. Kröfur á hendur stjórnarmanna um stefnumótun, eftirfylgni ákvarðana og gott yfirlit yfir umsvifamikla starfsemi fara vaxandi. Rétt þykir að kjörnum stjórnarmönnum gefist tóm til þess að útfæra uppkastið að samþykktinni endanlega á vettvangi sóknarnefndar sjálfrar. (Sjá E-lið)
- Hæfi aðal- og varamanna sóknarnefndar
Tillaga: Sóknarnefnd, aðal- og varamenn, skal vera skipuð leikmönnun sem eru lögráða, skírðir og skráðir í þjóðkirkjuna samkvæmt 6. gr. starfsreglna um söfnuði og sóknarnefndir. Þeir þurfa að hafa hreint sakavottorð.
Við kosningu í sóknarnefnd skal tekið mið af vanhæfisreglum starfsreglna um kirkjuþing.
- Til skýringar: Áður en gengið er til kosninga þarf að ganga úr skugga um að þau sem til álita koma til þátttöku í sóknarnefnd séu lögráða og skírð og skráð í þjóðkirkjuna. Jafnframt þurfa viðkomandi að gefa leyfi til þess að sakavottorð sé kannað.
Samkvæmt þriðju grein þingskapa Kirkjuþings má hver sá sem situr á kirkjuþingi „hvorki taka þátt í umfjöllun né atkvæðagreiðslu um mál sem varðar hann sérstaklega persónulega eða fjárhagslega.“
Hið sama gildir á aðalsafnaðarfundi og ber fundarstjóra að úrskurða um vafamál.
- Umbun í samræmi við skrá Kjaranefndar Þjóðkirkjunanr
Tillaga: Aðalmenn í sóknarnefnd fái umbun fyrir staðfesta þátttöku á sóknarnefndarfundum í samræmi við birta skrá Kjaranefndar Þjóðkirkjunnar um „þóknun fyrir störf í nefndum, ráðum, starfshópum og teymum á vegum þjóðkirkjunnar“.
Hið sama gildir um varamann sem sækir fundi sóknarnefndar í forföllum aðalmanns. Líta ber á þóknun sem launagreiðslu eins og gert er hjá Þjóðkirkjunni.
- Til skýringar: Samkvæmt áliti framkvæmdastjóra Þjóðkirkjunnar frá 8.1. 2025 er ekkert sem mælir gegn þessari skipan sé tillaga um hana lögð fram og samþykkt með réttum hætti á aðalsafnaðarfundi, og gætt sérstaklega að vanhæfisreglum gildandi starfsreglna um þingsköp kirkjuþings.
Sú hugmynd var uppi að biðja kjaranefnd Þjóðkirkjunnar að ákveða þóknun til sóknarnefndar en horfið var að því ráði að hafa einfaldlega til hliðsjónar ákvarðanir téðrar kjaranefndar um laun nefnda, starfshópa og teyma á vegum Þjóðkirkjunnar, sem birtar eru 1. apríl ár hvert á heimasíðu Kirkjuþings, www.kirkjuthing@kirkjan.is.
Kostnaður er áætlaður 1.4 til 1.8 milljónir króna á ári en til samanburðar er velta Hallgrímskirkju á ári um 500 milljónir króna.
- Uppkast að samþykkt í sóknarnefnd um verkaskipti og sérstök verkefni
Lagt fram á aðalsafnaðarfundi með tillögu nr. D. 3
- Formaður sóknarnefndar
Tillaga: Kallar saman sóknarnefnd, stýrir fundum hennar og hefur með höndum stjórn á störfum hennar og ræktarsemi við frumskyldur sóknar í samráði við vígða þjóna. Hefur forystu um undirbúning funda sóknarnefndar, svo og safnaðarfunda, aðalsafnaðarfunda og aukaaðalsafnaðarfunda ef um slíkt er að ræða.
Er í fyrirsvari fyrir sóknina á vegum sóknarnefndar og Hallgrímskirkju ásamt sóknarpresti gagnvart stjórnvöldum, einstaklingum og stofnunum.
Gætir þess að starfsemi sóknarnefndar sé í samræmi við gildandi starfsreglur Kirkjuþings Þjóðkirkjunnar um söfnuði og sóknarnefndir, kirkjur og safnaðarheimili og héraðsfundi og héraðsnefndir á hverjum tíma.
Leiðir starf sóknarnefndar að mótun ákvarðana um meiriháttar framkvæmdir og fjárskuldbindingar sóknarinnar.
Hefur fyrir hönd sóknarnefndar og í samráði við sóknarprest umsjón með ráðningu og samningagerð við kirkjuhaldara og organista svo og framkvæmd starfsmannastefnu.
Er fulltrúi sóknarnefndar í stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur og í Héraðsnefnd Reykjavíkurprófastsdæmis vestra.
- Varaformaður
Tillaga: Hefur á hverjum tíma gott yfirlit um umsvif sóknar og Hallgrímskirkju þannig að viðkomandi sé í stakk búinn til þess að koma í stað formanns í forföllum eða taka við stjórnartaumum ef því er að skipta. Þá hefur varaformaður það sérstaka hlutverk innan sóknarnefndar að fylgjast með undirbúningi og gerð verktakasamninga og verkáætlana svo og framkvæmd þeirra.
- Ritari
Tillaga: Boðar og bókar fundi sóknarnefndar og safnaðarfundi og sér til þess að fundargerðir séu staðfestar. Gætir að varðveislu bréfa, bóka og skjala sem snerta kirkjuna og starfsemi hennar.. Hefur umsjón með mætingarskráningu, innköllun varamanna og skráir tímavinnu hjá sóknarnefndarmönnum, ef um slíkt er að ræða. Situr í fulltrúaráði eða stjórn Hjálparstarfs kirkjunnar fyrir hönd sóknarnefndar
- Gjaldkeri
Tillaga: Hefur fyrir hönd sóknarnefndar umsjón með fjárstjórn kirkjunnar, gerð og framkvæmd fjárhagsáætlunar svo og reikningsskilum Hallgrímskirkju. Hefur eftirlitsprókúru og frumkvæði að því að setja á dagskrá umræðu um fjárstjórn á vor- og haustmisseri. Gjaldkeri hefur það sérstaka hlutverk að taka þátt í að móta innkaupastefnu og þróun vöruúrvals í sölubúð Hallgrímskirkju ásamt kirkjuhaldara og sóknarpresti.
- Safnaðar- og listafulltrúi
Tillaga: Hefur yfirsýn um listastarf kirkjunnar, muna- og minjaskrá, Listasafn Halglrímskirkju og sýningahald. Er fulltrúi Hallgrímssafnaðar á héraðsfundi Reykjavíkurprófastsdæmis vestra. Hefur það sérstaka hlutverk að fylgjast með störfum starfshópa, sem kjörnir eru til ýmissa verkefna á vegum sóknarnefndar eða safnaðarfunda.