Aðalsafnaðarfundur Hallgrímssafnaðar var haldinn 31. maí 2026

4. júní 2026

Aðalsafnaðarfundur Hallgrímssafnaðar var haldinn sunnudaginn 31. maí.

Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar, fór í upphafi yfir ýmis málefni er varða söfnuðinn.


Í máli sóknarprests kom m.a. fram að aukning var á aðsókn að helgihaldi kirkjunnar um rétt rúm 15% milli áranna 2024 og 2025 og fyrstu fjóra mánuði þessa árs jókst aðsóknin um rúm 9% samanborið við sama tíma í fyrra. Gríðarleg aðsókn hefur verið að helgihaldi á stærstu hátíðum kirkjuársins þ.e.a.s. um jól, páska og á Hvítasunnu. Sama má segja um aukningu á aðsókn á foreldramorgna og í sunnudagaskólastarf. Messað er hvern helgan dag ársins auk miðvikudaga og yfir veturinn eru einnig kyrrðarstundir einu sinni í viku og kvöldkirkja síðasta fimmtudag hvers mánaðar.


Tekjur safnaðarins jukust um tæp 5% milli áranna 2024 og 2025. Gera má ráð fyrir svipuðum tekjum og verið hafa undanfarin ár. Mjög stórum og kostnaðarsömum framkvæmdum í kirkjunni er lokið að sinni þó á næstu árum verði áframhald á ýmsum smærri en viðaminni framkvæmdum. Viðgerðir á ytra birði kirkjunnar hafa varað lengi og kostnaður hleypur á hundruðum milljóna.

Björn Steinar Sólbergsson organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju greindi frá tónlistarstarfi kirkjunnar sem var mikið og öflugt að venju. Veruleg aukning varð á tekjum af aðgangseyri, eða um 40% og aðsókn milli ára jókst um 23%.


Á aðalsafnaðarfundinum voru samþykktar nýjar verklagsreglur fyrir sóknarnefnd. Framvegis eru 5 aðalmenn í sóknarnefnd í stað 7 áður og framkvæmdanefnd lögð niður. Þóknun er greidd fyrir fundi í sóknarnefnd eins og gert er fyrir nefndastörf í Þjóðkirkjunni.

Á fundinum voru stjórnarmenn kjörnir til tveggja ára í samræmi við svigrúm til að ákveða lengd kjörtímabils í nýsamþykktum starfsreglum Kirkjuþings. Einar Karl Haraldsson er formaður, Rúnar Vilhjálmsson varaformaður, Guðrún Hlíðdal Gunnarsdóttir ritari, Guðlaugur Gunnarsson gjaldkeri og Harpa Þórsdóttir, lista- og safnaðarfulltrúi.


Varamenn í sóknarnefnd voru kjörin Ágústa Th Ólafsdóttir, Július Viggó Ólafsson, Kristín Björg Knútsdóttir, Svava Bernharðsdóttir og Óskar Jónsson.

Á aðalsafnaðarfundi voru Bára Guðmannsdóttir og Jóhannes Pálmason heiðruð fyrir nærri fjögurra áratuga samfellt starf í sóknarnefnd. Jóhannes var formaður í 31 ár og hefur verið síðan til ráðuneytis sem varamaður og Bára hefur verið máttarstólpi í Kvenfélagi Hallgrímskirkju alla tíð. Á myndinni eru þau Bára og Jóhannes ásamt formanni.



HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR