Bíræfin bjartsýni árið 1986 – Einar Karl Haraldsson
21. október 2026

„… ein af atkvæðamestu forystukonum kvenfélagsins skammaðist gjarnan yfir því að kirkjan væri teiknuð of lítil.“
Merkur fundur Reagans og Gorbatsjovs í Höfða fyrir 40 árum hefur verið rifjaður upp með ýmsum hætti að undanförnu. Rétt eftir leiðtogafundinn var Hallgrímskirkja vígð eftir 40 ára byggingarsögu. Karl Sigurbjörnsson rifjar það upp í bók sinni Skrifað í sandinn, sem út kom að honum látnum, að kirkjan hafi leikið lykilhlutverk í tengslum við fundarhöldin. „Það hefði verið vandkvæðum bundið að sjónvarpa beint frá fundinum út í heim ef Hallgrímskirkjuturns hefði ekki notið við.“
Erlendir fjölmiðlar þyrptust að til að fá afnot af turninum og setja þar upp „link“. Karl segir frá því að fulltrúi frá NBC-sjónvarpsstöðinni hafi krafist þess að Hallgrímskirkja veitti stöðinni einkarétt til útsendinga. Hún hafi verið fylgin sér og komið askvaðandi heim til hans þar sem hún hugðist bera á hann fé og otaði að honum dollarabúnti með miklum æsingi. Bogi Ágústsson upplýsti í sjónvarpsþætti á dögunum að varaútvarpsstjóri Sovétríkjanna hefði haft við orð að þætti útsending sjónvarps ekki hnökralaus frá Íslandi yrði hann sendur til Síberíu. Staðföst neitun séra Karls forðaði útvarpsstjóranum frá þeim örlögum.
Hár turn vegna víðvarps
Reykjavík var vaxandi bær á millistríðsárunum og í forystu fyrir dómkirkjusöfnuðinum voru stórhuga menn og konur. Forvígismenn sóknarnefndar gengu á fund kirkjumálaráðherra og fengu hann til þess að samþykkja styrk sem ætlað var að kosta hugmyndasamkeppni um stóra kirkju á Skólavörðuholti. Sjálfsagt hefur það haft sín áhrif að Fríkirkjan hafði á þriðja áratug síðustu aldar áform um stækkun og kaþólikkar hugðust reisa glæsilega kirkju á Landakotstúni. En sú sögusögn hefur verið í gangi að þjóðkirkjan hafi viljað hafa turninn eins háan og raun ber vitni til þess að hreykja sér yfir aðra. Forsögn samkeppninnar, sem efnt var til 1929, segir aðra sögu. Þar var áskilið að kirkjan skyldi taka 1.200 manns í sæti og hafa háan turn vegna væntanlegs „víðvarps“ eins og útvarp nefndist þá. Hér var sem sagt á ferðinni „undraverð framsýni“ af hálfu framtaksfólks.
Turninn hefur nú að mestu lokið sínu víðvarpshlutverki en hann er aftur á móti orðinn helsta kennileiti Reykjavíkur og Hallgrímskirkja mesti „ferðaþjónustusegull“ í borginni samkvæmt nýrri könnun Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins. Sem útsýnis- og íhugunarstaður skorar kirkjan hátt á alþjóðavettvangi og á hverjum degi á ferðafólk góðar stundir í kirkjuskipinu þar sem hlustað er á æfingar organista, kveikt á minningarkertum og ritaðar bænir sem fylla körfur og bornar eru upp að altarinu í messum. Deilur um arkitektúr kirkjunnar, innri gerð hennar og listskreytingar sem einkennast af naumhyggju þar sem dagsbirtan leikur höfuðhlutverkið, eru fyrir löngu að baki.
Hallgrímskirkja er of lítil
Guðjón Samúelsson merkti teikningar sínar að kirkjunni á sínum tíma ýmist sem nýja dómkirkjan eða Hallgrímskirkja. Flestum þótti nóg um stærðina nema einni af atkvæðamestu forystukonum kvenfélagsins sem skammaðist gjarnan yfir því að kirkjan væri teiknuð of lítil. Hún þyrfti að rýma allan söfnuðinn ef vel ætti að vera. Og þannig er það í dag að Hallgrímskirkja er of lítil. Þar sem ekki er hægt að leiða ferðamannastrauminn kringum eða til hliðar við athafnasvæði kirkjunnar, eins og tíðkast í stærstu dómkirkjum erlendis, myndast oft miklar raðir meðan beðið er eftir að athafnir eða tónleikar klárist. Stundum er þröngin slík í kirkjunni að erfiðleikum veldur og reynir þá mjög á lipurð og þolinmæði starfsfólks.
Glöggir vegfarendur um Skólavörðuholt hafa vafalaust tekið eftir því að engir vinnupallar eru nú við Hallgrímskirkju. Lokið er í bili stórfelldum múrviðgerðum sem hófust 2008 á turni og hafa síðan haldið áfram næstum samfellt bæði inni og úti allan hringinn. Samhliða hefur verið gert að þaki, skipt um lyftu,kórorgel stækkað, lýsing endurnýjuð ytra og innra, unnið við lagnakerfi og loftræstingu og framundan er að setja upp varanlegar hurðir þar sem notast hefur verið við bráðabirgðalausnir í fjörutíu ár. Í Hallgrímskirkju hallmælir enginn ferðafólkinu sem hefur skapað svigrúm til fjárfrekra framkvæmda vegna viðhalds- og endurnýjunar til viðbótar við velvild opinberra aðila og Þjóðkirkjunnar.
Skólavörðuholt þarf framtíðarsýn
Hallgrímskirkjufólk hefur bent á að það skortir framtíðarsýn um Skólavörðuholt og Hallgrímstorg.
Fram undan er að miklar byggingar eins og Tækniskólinn og Vörðuskóli fái ný hlutverk. Verða þau hlutverk eitthvað í ætt við upphaflegar hugmyndir Guðjóns Samúelssonar um „háborg menningar“ eða munu þar spretta upp fleiri hótel? Hvað sem því líður er þörfin fyrir einhvers konar þjónustuhús handa ferðafólki á þessu svæði augljós. Hallgrímskirkja þyrfti innan tíðar að byggja yfir sínar framtíðarþarfir en það er erfitt að afmarka þær eða efna til samstarfs meðan áform borgar og ríkis eru óljós.
Ég tek undir það álit Karls Sigurbjörnssonar að það var „bíræfin bjartsýni“ þegar afráðið var að gera Hallgrímskirkju vígsluhæfa á árinu 1986. Það var svo langt í land á öllum sviðum. En mætti ekki segja að slíkt viðhorf hafi einnig mótað fund Reagans og Gorbatsjovs. „Eruð þið vitlausir?“ var sú spurning sem oftast beindist að forráðamönnum Hallgrímskirkju þá. Og voru leiðtogarnir í Höfða ekki einmitt spurðir svipaðra spurninga? En það tókst að vígja Hallgrímskirkju 26. október 1986 á 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. „Með Guðs hjálp og góðs fólks, ótal margra sem að verkinu komu og með einum eða öðrum hætti lögðu lið.“
Höfundur er formaður sóknarnefndar Hallgrímssafnaðar.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu.