Boðunardagur Maríu í Hallgrímskirkju / Sunnudaginn 22. mars 2026

20. mars 2026

Messa, sunnudagaskóli og kvöldsöngur með Kór Hallgrímskirkju.

Boðunardagur Maríu í Hallgrímskirkju

Sunnudagur 22. mars 2026

Boðunardagur Maríu, sunnudaginn 22. mars, verður haldinn hátíðlegur í Hallgrímskirkju með fjölbreyttri og hátíðlegri dagskrá fyrir alla aldurshópa, messu, sunnudagaskóla og kvöldsöng með Kór Hallgrímskirkju.

Dagurinn minnir okkur á þegar erkiengillinn Gabríel færði Maríu boðskapinn um fæðingu Jesú, níu mánuðum fyrir jól.


Messa kl. 11

Sr. Irma sjöfn Óskarsdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.

Messuþjónar aðstoða.

Aurora Kammerkór leiðir söng undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur.

Organisti er Björn Steinar Sólbergsson.


Hvað er Pálmasunnudagur?

Sunnudagaskólinn er á sínum stað.

Fjallað verður um viðburði Pálmasunnudags á lifandi og fræðandi hátt.

Umsjón: Lilja Rut Halldórsdóttir, Erlendur snær Erlendsson og Lára Ruth Clausen


Boðunardagur Maríu / The Annunciation of Mary

Kvöldsöngur kl. 17:00

Hallgrímskirkja býður upp á kvöldsöng (evensong) með Kór Hallgrímskirkju þar sem m.a. verða frumflutt tvö ný kórverk: Magnificat eftir Tryggva M. Baldvinsson fyrir kór, orgel og einsöng og Salve Regina eftir Þóru Marteinsdóttur fyrir a capella kór.

Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir

Flytjendur tónlistar: Kór Hallgrímskirkju, Steinar Logi Helgason, stjórnandi, Björn Steinar Sólbergsson, orgel Matthías Harðarson, orgel og Jóna G. Kolbrúnardóttir, sópran.


Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin


HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR