Fjórhent og fjórfætt – Opnunar tónleikar Orgelsumar í Hallgrímskirkju á sunnudaginn
1. júlí 2026

Orgelsumar Hallgrímskirkju hefst með kraftmiklum opnunartónleikum sunnudaginn 5. júlí kl. 17

Fjórhent og fjórfætt
Orgelsumar Hallgrímskirkju hefst sunnudaginn 5. júlí kl. 17 með glæsilegum opnunartónleikum þar sem organistarnir Björn Steinar Sólbergsson og Steinar Logi Helgason leiða saman krafta sína við orgel Hallgrímskirkju. Sérstakur gestur tónleikanna er Frank Aarnink, slagverks- og pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Á efnisskránni er fjölbreytt tónlist sem spannar rúmlega þrjár aldir – allt frá barokkmeisturunum Johann Pachelbel og Johann Bernhard Bach til franskrar orgeltónlistar Eugènes Gigout og íslenskra meistaraverka eftir Þorkel Sigurbjörnsson og Jón Nordal. Tónleikunum lýkur með glæsilegri útsetningu Hans Uwe Hielscher á hinu sívinsæla Boléro eftir Maurice Ravel fyrir tvö orgel og slagverk, þar sem áhrifamikill hljóðheimur Hallgrímskirkju fær að njóta sín til fulls.
Björn Steinar Sólbergsson er organisti og tónlistarstjóri Hallgrímskirkju og einn af fremstu orgelleikurum landsins. Steinar Logi Helgason er kórstjóri Hallgrímskirkju og hefur á undanförnum árum skipað sér í fremstu röð íslenskra kirkjutónlistarmanna. Frank Aarnink hefur verið slagverks- og pákuleikari Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2001.
Tónleikarnir marka upphaf Orgelsumars 2026, tónleikaraðar sem býður upp á fjölbreytta orgeltónlist í einstöku hljóðrými Hallgrímskirkju yfir sumarmánuðina.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR
--ENGLISH--
Four Hands & Four Feet – Opening Concert of the Organ Summer in Hallgrímskirkja 2026
Hallgrímskirkja opens its 2026 Organ Summer Festival on Sunday, 5 July at 5:00 pm with Four Hands & Four Feet, a concert featuring the church' organists Björn Steinar Sólbergsson and Steinar Logi Helgason. They will be joined by special guest Frank Aarnink, percussionist and timpanist with the Iceland Symphony Orchestra.
The programme spans more than three centuries of music, from the Baroque masters Johann Pachelbel and Johann Bernhard Bach to French Romantic organ music by Eugène Gigout and works by two of Iceland's most distinguished composers, Þorkell Sigurbjörnsson and Jón Nordal. The concert concludes with Hans Uwe Hielscher's spectacular arrangement of Maurice Ravel's Boléro for two organists and percussion, showcasing the remarkable sonorities of Hallgrímskirkja's Klais organ.
Björn Steinar Sólbergsson is Organist and Director of Music at Hallgrímskirkja, while Steinar Logi Helgason serves as the church's Choir Director.
The concert marks the opening of Organ Summer 2026, Hallgrímskirkja's annual summer concert series celebrating the rich and varied repertoire of the organ in one of Iceland's most iconic musical venues.
HALLGRÍMsKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAÍK