Haldið upp á 40 ára vígsluhátíð í Hallgrímskirkju í október 2026

8. október 2026

Vegleg dagskrá verður í Hallgrímskirkju vikuna 18.-25. október í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar sunnudaginn 25. október 2026.

40 ÁRA VÍGSLUAFMÆLI  Í HALLGRÍMSKIRKJU

DAGSKRÁ 18. - 25. október


Sunnudagur 18. október


FJÖLSKYLDUGUÐSÞJÓNUSTA KL. 11

Fjölskyldan í forgrunni þegar afmælisvikan hefst.

Stúlknakór Reykjavíkur leiðir söng undir stjórn Sigríðar Soffíu Hafliðadóttur. Umsjón með barnastarfi: Lára Ruth Clausen, Kristbjörg Katla Hinriksdóttir, Rósa Hrönn Árnadóttir og Ragnheiður Bjarnadóttir. Barnakór Hallgrímskirkju syngja með í sunnudagaskólalögunum. Alma Hlín Þórarinsdóttir, nemandi úr Söngskólanum í Reykjavík syngur einsöng.Prestur Sr. Eiríkur Jóhannsson. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson


VINNUSTOFA FYRIR BÖRN: HALLGRÍMS-KIRKJA MEÐ AUGUM ARKITEKTS KL. CA. 12:15

Alma Sigurðardóttir arkitekt segir börnum frá Hallgríms-kirkju, byggingu hennar og sögu.


Miðvikudagur 21. október


MORGUNMESSA KL. 10

Morgunmessan verður með hátíðarbrag og veitingar á eftir í suðursal. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.


KYNNING Á HALLGRÍMSMESSU KL. 19

Fyrir flutning á Hallgrímsmessu býður Örn Magnús-son tónlistarmaður upp á stutta kynningu á messunni í norðursal Hallgrímskirkju. Kynningin hefst kl. 19:00. Kynningin er á íslensku.


HALLGRÍMSMESSA KL. 20

Kammerkórinn AMICI og Cantores Islandiae flytja tónlist undir stjórn Arnar Magnússonar og Ágústs Inga Ágústssonar.

 Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir.


Fimmtudagur 22. október


KYRRÐARSTUND KL. 12

Kyrrðarstund í afmælisvikunni verður sérstaklega hátíðleg með Birni Steinari Sólbergssyni organista og Benedikt Kristjánssyni tenór. Prestur er sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Eftir stundina er boðið upp á létta hádegishressingu í suðursal Hallgrímskirkju.


HALLGRÍMSKIRKJA Í MÓTUN KL. 17

Hátíðarfyrirlestur með Andrési Narfa Andréssyni, arkitekt

Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju verður arkitektinn Andrés Narfi Andrésson með sérstakan hátíðarfyrirlestur.

Fjallað verður um Hallgrímskirkju, tilurð hennar, arkitektúr og þá hugmyndasögu sem liggur að baki kirkjubyggingarinnar.

Andrés Narfi varpar einnig ljósi á sögu kirkjunn-ar og stöðu hennar í borgarlandslaginu sem eitt helsta kennileiti Reykjavíkur.

Fyrirlesturinn er á íslensku.



KVÖLDKIRKJA KL. 20

Tónlist og íhugun.

Umsjón: Ari Hallgrímsson, Egill Vignir Reynisson og Grétar Einarsson

Tónlist: Ása Lind Finnbogadóttir


Sunnudagur 25. október – Hallgrímsdagur


HÁTÍÐARMESSA KL. 11

40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju

Sr. Eiríkur Jóhannsson og sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir þjóna fyrir altari. Sr. Gísli Gunnarsson vígslubiskup prédikar. Messuþjónar aðstoða. Kór Hallgrímskirkju syngur undir stjórn Steinars Loga Helgasonar. Organisti er Björn Steinar Sólbergsson. Við fögnum tímamótunum með hátíðarmessu og tónlist. Flutt verður m.a. glænýtt verk eftir Hauk Tómasson sem samið var í tilefni vígsluafmælisins.


TVÆR OPNANIR – MYNDLIST Í TILEFNI AFMÆLISINS CA. KL. 12:15

Að lokinni hátíðarmessu verða opnaðar tvær sýningar


HALLGRÍMSKIRKJA Í LITUM

Verk eftir listamanninn Inga Hrafn Stefánsson


HALLGRÍMSKIRKJURENNINGUR

Myndlýst saga Hallgrímskirkju eftir listamanninn Halldór Baldursson


IN CAELO ET IN TERRA – ÚTGÁFUTÓNLEIKAR KL. 17

Flytjendur:

Kór Hallgrímskirkju

Steinar Logi Helgason stjórnandi

Björn Steinar Sólbergsson orgel

Jóna G. Kolbrúnardóttir sópran

Sólbjörg Björnsdóttir sópran


Tekið verður á móti frjálsum framlögum í kórsjóð.

Einnig verður nýja breiðskífan til sölu í anddyri kirkjunnar fyrir tónleikana.


Ókeypis aðgangur er á alla viðburði afmælisvikunnar. Komið og fagnið með okkur!


HALLGRÍMSKIRKJA – MEIRA EN HÚS