Hallgrímskirkja í litum
24. október 2026

This is a subtitle for your new post
Ingi Hrafn Stefánsson
Hallgrímskirkja í litum
Hér hefur Ingi Hrafn Stefánsson unnið sjálfsmynd þar sem hann horfir keikur fram á við. Hann hefur tekið sérstöku ástfóstri við Hallgrímskirkju og hefur um árabil túlkað ásjónu hennar í ýmsa miðla af listrænu innsæi. Hann heimsækir kirkjuna á ýmsum tímum mismunandi árstíða og sýnir hana oftast utanfrá. Þó má einnig sjá hér nokkrar myndir sem sýna sjónarhorn á innra rýmið og tvær myndanna eru alveg abstrakt. Mörg verkanna vinnur hann eftir ljósmyndum sem hann tekur sjálfur. Af einlægni og væntumþykju málar hann og teiknar línur og fleti í blæbrigðaríkum litum, ýmist sterkum eða mildum.
Ingi Hrafn vinnur við skapandi störf í Ási vinnustofu og hefur einnig sótt námskeið í myndlist á vegum Myndlistaskóla Reykjavíkur og Fjölmenntar. Verk hans hafa vakið verðskuldaða eftirtekt og verið valin til sýninga á virtum sýningarstöðum.
Á 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju vill svo skemmtilega til að Ingi Hrafn Stefánsson fagnar 43 ára afmæli sínu á sama tíma, þann 26. október 2026.
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR