Hallgrímskirkja tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík 2026
26. maí 2026

Hallgrímskirkja á Listahátíð í Reykjavík 2026
Samhljómur kynslóða: Hildur Guðnadóttir og Jón Nordal

Hallgrímskirkja tekur þátt í Listahátíð í Reykjavík 2026 með tónleikum Kórs Hallgrímskirkju, Samhljómur kynslóða: Hildur Guðnadóttir og Jón Nordal, þar sem tveimur áhrifamiklum tónskáldum verður teflt saman; annars vegar Hildi Guðnadóttur, hátíðarlistamanni Listahátíðar, og hins vegar Jóni Nordal sem hefði orðið 100 ára í ár, vorið 2026.
Á tónleikunum verða flutt áhrifarík kórverk eftir Hildi Guðnadóttur sem hún hefur samið fyrir kór ásamt stórvirki Jóns Nordal, Óttusöngvar á vori (1993), fyrir kór, sópran, kontratenór, orgel, selló og slagverk. Verkið er eitt af merkustu tónverkum Jóns og sameinar á áhrifamikinn hátt raddir, hljóðfæri og ljóðræna tjáningu.
Fram koma:
Kór Hallgrímskirkju
Álfheiður Erla Guðmundsdóttir, sópran
Andrew Watts, kontratenór
Björn Steinar Sólbergsson, orgel
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló
Frank Aarnink, slagverk
Stjórnandi: Steinar Logi Helgason
Tónleikarnir skapa samtal ólíkra tónheima þar sem verk tveggja áhrifamikilla íslenskra tónskálda mætast í Hallgrímskirkju.
HALLGRÍmsKIRKJA – ÞINN TÓNLEIKASTAÐUR