Hallgrímskirkjurenningur
25. október 2026

Myndlist í tilefni 40 ára vígsluafmælis Hallgríms
HALLGRÍMSKIRKJURENNINGUR
Í tilefni 40 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju hefur myndlistamaðurinn Halldór Baldursson myndgert sögulegt ágrip um að draganda og uppbyggingu þessa minnisvarða um þekktasta sálmaskáld okkar, Hallgrím Pétursson (1614-1674).
Söguna frá því að skólapiltar hlóðu vörðu við þjóðleiðina til Reykjavíkur á hæðinni ofan við bæinn, þaðan sem heiti holtsins og Skólavörðurstígs er dregið, og fram til okkar tíma. Renningurinn endurspeglar tilurð Hallgrímskirkju, þessa lifandi minnisvarða sem tók mörg ár að byggja en það tókst vegna þrautseigju og velvildar fjölda fólks. Þar má nú njóta fjölbreytts helgihalds, margvíslegra listviðburða, sækja ýmsa þjónustu og á holtinu er enn þekkt kennileiti, kirkja Hallgríms, með kirkjuturn sem er mun hærri en sá útýnisturn sem reistur var á holtinu árið 1868.
Halldór Baldursson (1965) er þekktur og margverðlaunaður teiknari sem við upphaf ferils síns vann teiknimyndbækur fyrir fullorðna en varð hvað kunnastur fyrir pólitískar og samfélagslegar skopmyndir. Hann hefur einnig myndlýst yfir hundrað bækur og kennslurit.
Halldór hefur kennt teikningu í Listaháskóla Íslands og Myndlistaskóla Reykjavíkur þar sem hann leiðir nú teiknideildina. Með færni sinni ásamt samfélagslegum og menningarlegum áhuga hefur Halldór dregið upp áhugaverða myndasögu á renning í Hallgrímskirkju.
Við hátíðarmessu sunnudaginn 25. október 2026 sem hefst kl. 11 verður sýningin formlega opnuð og mun að öllum líkindum vera uppi fram að aðventu.
HALLGRÍMSKIRKJA – STAÐUR LISTA