Hátíð í myndum
26. október 2026

Hátíðarviku í tilefni 40 ára vígsluafmælis Hallgrímskirkju 18.–25. október 2026 – Hátíð í myndum
Sunnudaginn 25. október 2026 voru 40 ár liðin frá vígslu Hallgrímskirkju. Afmælinu var fagnað með hátíðarviku þar sem saga kirkjunnar, helgihald, tónlist, fræðsla, myndlist og samfélag komu saman í fjölbreyttri dagskrá dagana 18þ–25. .
Hátíðarhöldin endurspegluðu hið margþætta hlutverk Hallgrímskirkju í íslensku samfélagi sem kirkja sem er samtímis vettvangur helgihalds, tónlistar, lista, fræðslu og samveru.
Á dagskránni var hátíðlegt helgihald, tónleikar, myndlist, fyrirlestrar og fræðsluviðburðir þar sem gestir fengu tækifæri til að kynnast sögu kirkjunnar, arkitektúr hennar og þeirri hugsjón sem liggur að baki byggingu hennar. Þá voru opnaðar tvær myndlistarsýningar í tilefni afmælisins sem varpa ljósi á Hallgrímskirkju frá ólíkum sjónarhornum.
Myndirnar fanga brot af hátíðinni, fólkið sem tók þátt, tónlistina sem fyllti kirkjurýmið, stundir helgihaldsins og fjölbreytta listræna og fræðandi dagskrá. Þær minna okkur jafnframt á þann mikla fjölda fólks sem hefur lagt sitt af mörkum til að gera Hallgrímskirkju að því merka kennileiti og mikilvæga menningar- og trúarrými sem hún er í dag.
Við þökkum öllum sem tóku þátt í hátíðarhöldunum, komu fram, miðluðu þekkingu sinni og lögðu hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd afmælisvikunnar. Saman héldum við upp á fjóra áratugi af sögu kirkjunnar og horfum fram á veginn með þakklæti og tilhlökkun.
Takk fyrir að fagna með okkur!



















































































