Haust í Hallgrímskirkju / Autumn at Hallgrímskirkja 2026
25. ágúst 2026

Haustið í Hallgrímskirkju býður upp á fjölbreytta og glæsilega dagskrá þar sem helgihald, tónlist, íhugun, fræðsla, fjölskyldustarf og myndlist fléttast saman.

Helgihald og safnaðarstarf
Reglulegt helgihald er stór hluti af starfsemi Hallgrímskirkju yfir haustið. Messa og sunnudagaskóli eru á sunnudögum kl. 11 og hefst sunnudagaskólinn aftur 6. september. Á síðasta sunnudegi hvers mánaðar er einnig guðsþjónusta á ensku kl. 14 í kórkjallara.
Í kapellunni eru bænastundir á mánudögum og föstudögum kl. 12 og á miðvikudögum er morgunmessa kl. 10. Á fimmtudögum kl. 12 er boðið upp á kyrrðarstund með orgeltónlist og íhugun. Fyrsta kyrrðarstund haustsins verður 17. september og að henni lokinni er boðið upp á léttar veitingar í Suðursal.
Síðasta fimmtudag hvers mánaðar verður Kvöldkirkja, frá 24. september, kl. 20–22. Þar verður áhersla á tónlist og íhugun og gefst gestum tækifæri til að staldra við í kirkjunni að kvöldlagi.
Fjölbreytt starf fyrir samfélagið heldur einnig áfram. Foreldramorgnar eru á miðvikudögum kl. 10–12 og handavinnuhópur hittist á laugardögum kl. 10–12 í kórkjallara. Ávallt er heitt á könnunni.
Helgihald verður einnig á Droplaugarstöðum fyrsta miðvikudag hvers mánaðar yfir vetrartímann kl. 14.
Fræðsla, fjölskyldustarf og sérstakir viðburðir
Í október hefjast fræðsluerindi í hádeginu, þar sem fjallað verður um málefni sem eru ofarlega á baugi í kirkju og samfélagi. Nánari dagsetningar verða auglýstar síðar.
Á haustinu verða einnig sérstakir viðburðir í helgihaldi. Opin sálmaæfing verður sunnudagana 4. október og 22. nóvember kl. 10.30, þar sem allir eru velkomnir að taka þátt í undirbúningi söngs fyrir sunnudagsmessuna.
Fjölskylduguðsþjónusta verður 18. október kl. 11 og 25. október fer fram hátíðarmessa í tilefni af 40 ára vígsluafmæli Hallgrímskirkju.
Tónlistin í öndvegi
Tónlist hefur löngum skipað sérstakan sess í Hallgrímskirkju og tónleikadagskrá haustsins er fjölbreytt.
Hausttónleikaröðin hefst 5. september kl. 12 með hádegistónleikum þar sem Eyþór Ingi Jónsson leikur á orgel. Þann 27. september verður Björn Steinar: 40 ára starfsafmæli, þar sem Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel. Björn Steinar fagnar 40 ára starfsafmæli sem organisti hjá þjóðkirkjunni; 20 ár í Akureyrarkirkju og 20 ár í Hallgrímskirkju. Fyrr á þessu ári kom út nýr geiladiskur hans Íslensk orgeltónlist. Tónleikarnir verða jafnframt útgáfutónleikar disksins.
3. október taka Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti og Jón Arnar Einarsson básúnuleikari saman höndum á hádegistónleikum.
Í tengslum við Hallgrímsdag verður Hallgrímsmessa 21. október kl. 20, þar sem Cantores Islandiae og vinir Breiðholtskirkju koma fram undir stjórn Arnar Magnússonar og Ágústs Inga Ágústssonar.
Þann 25. október verða útgáfutónleikar Kórs Hallgrímskirkju með Birni Steinari Sólbergssyni á orgel og Steinar Loga Helgasyni sem stjórnanda.
1. nóvember verða tónleikar á Allraheilagramessu þar hljómar verkið Vesper eftir Rachmaninoff í flutningi Kyrju og Yrkju. Föstudaginn 6. nóvember tekur Hallgrímskirkja þátt í Iceland Airwaves, þar mun Högni Egilsson koma fram sem stjórnandi og tónskáld ásamt Cantoque Ensemble. Tónleikaröðin heldur áfram laugardaginn 7. nóvember með hádegistónleikum Tuuli Rähni organista og lýkur með tónleikum nemenda úr tónlistarsdeild Listaháskóla Íslands þann 14. nóvember en samstarf milli Listaháskólans og Hallgrímskirkju hefur verið farsælt um árabil.
40 ára vígsluafmæli: Hallgrímskirkja í myndlist
25. október 2026 eru 40 ár liðin frá vígslu Hallgrímskirkju. Í tilefni af þessum tímamótum verða tvær glæsilegar myndlistarsýningar opnaðar í kirkjunni. Þær eru: Hallgrímskirkja í litum sem er sýning eftir listamanninn Inga Hrafn Stefánsson og verður opnuð eftir hátíðarmessuna 25. október og á sama tíma verður opnuð sýningin Hallgrímskirkjurefill sem er myndskreytt saga kirkjunnar eftir listamanninn Halldór Baldursson. Sýningarnar gefa ólíka sýn á kirkjuna og sögu hennar og verða hluti af dagskrá afmælisársins.
Velkomin í Hallgrímskirkju
Haustdagskráin endurspeglar fjölbreytt hlutverk Hallgrímskirkju; sem kirkju, menningarstaðar, tónleikahúss og samkomustaðar og sýnir þau markmið kirkjunnar að skapa rými fyrir samfélag, nærveru, íhugun og upplifun.
Vetraropnun
Hallgrímskirkja er opin 10–17 og turn og kirkjubúð 10–16.45. Við hvetjum gesti til að athuga opnunartíma áður en komið er í heimsókn.
Aðgengi að kirkju og turni getur verið takmarkað meðan á helgihaldi, athöfnum og tónleikum stendur og opnunartími getur verið breyttur á hátíðar- og frídögum.
Við bjóðum öll hjartanlega velkomin í Hallgrímskirkju í haust.
Miðasala á tónleika í kirkjunni fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/venue/2069
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR
--ENGLISH--
Autumn at Hallgrímskirkja 2026
This autumn, Hallgrímskirkja offers a rich and varied programme of worship, music, reflection, family activities, education and art.
Join us for Sunday worship and Sunday School, English-language services in the Choir Basement, morning services, prayers in the chapel, and our weekly Organ & Meditation sessions at noon on Thursdays. Our Evening Church also returns at the end of each month, offering an evening of music, contemplation and quiet.
There will be plenty happening for families and the wider community, including Parents’ Mornings, the knitting group, family worship, children's choir and educational talks.
Music is at the heart of Hallgrímskirkja, and the autumn concert programme includes organ recitals, choir concerts, special services and performances connected with Iceland Airwaves and the Iceland University of the Arts.
Tickets to concerts at Hallgrímskirkja are available in our church shop and online on https://tix.is/venue/2069
A special highlight will be the 25 October, marking the 40th anniversary of the consecration of Hallgrímskirkja. A festive service will be held at 11:00, followed by the opening of two exhibitions celebrating the church and its history: Hallgrímskirkja in Colour by Ingi Hrafn Stefánsson and Hallgrímskirkjurefill (An Illustrated History of Hallgrímskirkja) by Halldór Baldursson.
Winter Opening Hours
From September 1st Hallgrímskirkja is open 10:00–17:00, and the tower and church shop are open 10:00–16:45. We recommend checking the opening hours before your visit.
Please note that access to the church and tower may be restricted during services, ceremonies and concerts, and opening hours may vary on public holidays and special occasions.
Whether you are looking for music, worship, quiet reflection, community or simply a moment to experience this unique space, you are warmly welcome at Hallgrímskirkja this autumn.
HALLGRÍMSKIRKJA – YOUR PLACE IN REYKJAVÍK